Hvað er metan
Á Íslandi sem erlendis er metan þekkt sem öruggt, umhverfisvænt og hagfellt ökutækjaeldsneyti en um allan heim er það einnig mikið notað til húshitunar, eldunar og rafmagnsframleiðslu. Metan er hægt að framleiða úr öllu lífrænu efni á yfirborði jarðar (nútíma-metan). SORPA bs. hefur framleitt nútíma-metan ökutækjaeldsneyti frá árinu 2000 úr hauggasi sem myndast við niðurbrot á lífrænu efni á urðunarstað höfuðborgar-svæðisins á Álfsnesi. Þar fyrir utan er metan helsta efnasambandið í jarðgasi en metan eldsneyti sem unnið er úr jarðgasi mætti nefna fyrritíma-metan þar sem það myndast í jarðlögum úr lífrænu efni sem var á yfirborði jarðar í fortíðinni. Orkuinnihald og eiginleiki metan sameindarinnar (CH4) er sá sami óháð því hvernig sameindin er mynduð. Umhverfislegur ávinningur af því að nota, fyrritíma-metan á ökutæki er mikill samanborið við notkun á bensíni, dísilolíu eða rafhlöðu sem hluta af orkukerfi ökutækis en ávinningurinn er enn meiri ef nútíma-metan er notað sem eldsneyti.
Metan í náttúrunni er lofttegund sem myndast við niðurbrot baktería á lífrænu efni við aðstæður þar sem súrefni (O) kemst ekki að lífræna efninu, eða með svonefndu loftfirrtu niðurbroti (gerjun) á lífrænu efni. Slíkar aðstæður skapast til dæmis í mýrum (mýragas) og votlendi og á urðunarstöðum þar sem súrefni á ekki greiðan aðgang að urðuðum lífmassa. Á urðunarstað SORPU bs. í Álfsnesi myndast gas við niðurbrot úrgangs á urðunarstaðnum sem nefnt er hauggas. Á Álfsnesi mælist efnainnihald í hauggasinu að jafnaði um 57% metan (CH4), 41% koldíoxíð (CO2) og um 2% aðrar lofttegundir.
Víða um heim er nútíma-metan framleitt í sérstökum verksmiðjum úr lífrænum úrgangi frá heimilum, fyrirtækjum, landbúnaði og annarri atvinnustarfsemi. Einnig eru orkuplöntur víða ræktaðar til framleiðslu á nútíma-metani og er þá unnt að nýta allan lífmassa orkuplantanna til framleiðslunnar. Leifarnar úr framleiðsluferli nútíma-metans er næringarríkt hrat sem nýtist mjög vel til uppgræðslu lands eða næstu kynslóðar af orkuplöntum (áburður). Hér er því um að ræða góða nýtingu á lífmassa og sjálfbæra hringrás. Jafnframt má framleiða nútíma-metan eldsneyti úr seyru. Sem dæmi, eru flest ökutæki í rekstri Stokkhólmsborgar knúin metan eldsneyti sem unnið er úr seyru frá holræsakerfi borgarinnar.
Metan er einnig helsta lofttegundin í jarðgasi (e.natural gas) sem er að finna í jarðskorpunni víða um heim. Meðal annars eru líkindi talin standa til þess að jarðgas sé að finna á Drekasvæðinu við Ísland. Metan eldsneyti sem unnið er úr jarðgasi ber annað heiti á erlendum tungumálum til að varpa ljósi á uppruna þess. Efnisuppbygging (CH4) og eiginleikar metan eldsneytis eru þó þeir sömu hvort heldur metanið sé fengið úr lífmassa á yfirborði jarðar í dag eða úr jarðagasi. Á ensku er rætt um íslenskt metan eldsneyti (nútíma-metan) sem ,,Bio-Methane´´ en metan eldsneytis sem unnið er úr jarðgasi er nefnt ,,Natural Gas'' (NG).
Lofttegundin metan er skilgreind sem gróðurhúsalofttegund þar sem hver sameind af metani (CH4) veldur um 21x meiri hlýnunaráhrifum í andrúmsloftinu en ein sameind af koldíoxíði (CO2). Með söfnun á hauggasi á urðunarstað, sem inniheldur 57% metan, skapast því mikill umhverfislegur ávinningur - söfnunin varnar því að metan berist út í andrúmsloftið og valdi hlýnunaráhrifum í lofthjúpi jarðar. Eftir söfnun á hauggasi frá urðunarstað er metan einangrað úr hauggasinu (hreinsað frá) í sérstakri hreinsistöð með svonefndri vatnsþvegilstækni (e. Water Scrubber Technology) og afurðin verður nútíma-metan ökutækjaeldsneyti í hæsta gæðaflokki með allt að 98% hreinleika, 125-130 oktan eldsneyti. Með notkun á íslesnku metan eldsneyti til að knýja ökutæki í stað jarðefnaeldsneytis ( bensíns og dísilolíu) er verulega dregið úr því magni af koldíoxíði (CO2) sem ella losnar út í umhverfið. Olía er sótt í jarðskorpuna og með því að brenna hana á yfirborði jarðar eykst magn gróðurhúsalofttegunda í lofthjúpi jarðarinnar. Notkun á íslensku metani (nútíma-metani) í bílhreyfli eykur hins vegar ekki heildarmagn kolefnis í lofthjúpi jarðar enda hefði kolefnið í nútíma-metani hvort sem er endað í andrúmsloftinu. Enginn faglegur ágreiningur er um ávinninginn af notkun á íslensku metani.








