Metan eldsneyti
Metan ökutækjaeldsneyti nýtur síaukinna vinsælda um allan heim og er notað á allar gerðir ökutækja hvort heldur um er að ræða fólksbíla, lögreglubíla, sjúkrabíla, sendibíla, sorphirðubíl, strætó eða önnur stærri samgöngutæki. Metan er einnig notað sem eldsneyti á báta, ferjur og skip og á ýmsar vélar í iðnaði og stóriðju samanber frétt í mars 2010 um álver í Katar. Í landsamgöngum er metan mest afgreitt sem lofttegund fyrir fólksbíla en metan í vökvaformi er einnig í mikilli sókn sem eldsneyti fyrir stærri ökutæki og vinnuvélar.
Íslenskt metan er nútíma-metan-eldsneyti sem unnt að framleiða út öllu lífrænu efni á yfirborði jarðarinnar, hvort heldur um er að ræða lífrænan úrgang frá heimilum, landbúnaði, sjávarútvegi og annarri atvinnustarfsemi eða með ræktun á lífmassa á landi, sjó og vötnum. Sú mikla þekkingaraukning og tækniþróun sem hefur átt sér stað, á sviði framleiðslu og dreifingar á metani, hefur gert það að verkum að um allan heim er horft til metanvæðingar í samgöngum sem veigamikils þáttar við umhverfisvæn orkukerfisskipta í samgöngum á þessari öld. Og einnig vegur þungt að metanvæðingin gerir þjóðum heims kleift að auka orkuöryggi sitt með sjálfbærum hætti.

Margar þjóðir búa einnig yfir auðlindum í jarðskorpunni í formi jarðgass (fyrritíma-metan-eldsneyti) sem inniheldur 50-90% metan eftir landsvæðum og því fyrirsjáanleg mikil aukning á notkun metan ökutækjaeldsneytis í framtíðinni. Orkukerfisskipti frá notkun bensíns og dísilolíu yfir í metan eldsneyti sem unnið er úr jarðgasi ( e. Natural Gas, NG eða Compressed Natural Gas, CNG) skapar mikinn hlutfallslegan umhverfislegan ávinning en þó ekki jafn mikinn og okkar íslenska metan eldsneyti sem unnið er úr lífrænu efni á yfirborði jarðar, nútíma-metan (e. Bio-methane). Ef framvinda metanvæðingar á Íslandi verður það hröð að þjóðin nær ekki að anna eftirspurn eftir nútíma-metan eldsneyti með innanlandsframleiðslu, er hægt að flytja inn. tímabundið, nútíma-metan eða fyrritíma-metan, enda er framboð á metan eldsneyti mikið í heiminum og verð á metani mun lægra á heimsmarkaði en verð á bensín og dísilolíu - gjaldeyrissparnaður.

Heimsmarkaðsverð á metani er mun lægra en á bensíni og dísilolíu - gjaldeyrissparnaður.
Í ýtarlegri skýrslu ( NAS-skýrslan , National Academy of Sciencs) sem birt var þann 28.október 2009 voru heildræn umhverfisáhrif helstu valkosta til vélknúinna samgangna borinn saman með hliðsjón af fyrirsjáanlegri þróun ökutækja og orkukerfa fram til ársins 2030 . Þar kom skýrt fram að ökutæki sem ganga fyrir metan eldsneyti fá hæstu einkunn í samanburði við aðra valkosti þótt metan eldsneyti sé unnið úr jarðgasi. Og samhliða var því öllum ljóst , að ökutæki sem gengur fyrir íslensku metani, nútíma-metani ( e. Bio-Methane) er í algjörum sérflokki í samanburði við önnur sambærileg vélknúin ökutæki, hvað varðar heildræn umhverfisáhrif. Og samhliða að stóraukin metanvæðingi á bílaflota Íslendinga tryggir mestu mögulegu minnkun á losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) sem völ er á í samgöngum þjóðarinnar - að því gefnu að bílaflotinn verði notaður til samgangna hér eftir sem hingað til. Þar fyrir utan er rekstrarlegur ávinningur okkar Íslendinga og þjóðhagslegur ávinningur, samfara aukinni nýtingu á íslensku metani, það mikill að enginn annar valkostur til sambærilegra samgangna stenst þann samanburð með fyrirsjáanlegum hætti langt inn í þessa öld.
Eiginleikar metan eldsneytis voru manninum kunnir snemma á síðustu öld og lengst af var metan aðallega nýtt til húshitunar og rafmagnsframleiðslu víða um heim. Hér á landi hefur metan eldsneyti ekki verið nýtt með þeim hætti enda búum við Íslendingar það vel, að nýta heitt vatn til húshitunar og framleiða rafmagn með virkjun fallvatna og nýtingu jarðvarma. Metanvæðing ökutækja hefur verið viðhöfð um langt skeið víða um heim og í fyrstu með því að hefðbundnum bensínbílum var breytt (uppfærsla) þannig að þeir gætu einnig gengið fyrir metani. Á síðari hluta síðustu aldar hófu bílaframleiðendur að svara kalli markaðarins með stórauknu framboði ökutækja sem nýtt geta metan eldsneyti í akstri.
Í dag framleiða flestir bílaframleiðendur í heiminum ökutæki sem nýtt geta metan eldsneyti. Ökutækin eru flest með svonefndri tvíbrennivél eða vél sem gengur fyrir metani en getur einnig gengið fyrir bensíni ef á þarf að halda. Ökutækin hafa því tvo eldsneytisgeyma, metan-og bensíngeymi og því um fullt ferðafrelsi að ræða á slíkum ökutækjum samanborið við bensínbíl sömu gerðar. Vél metan/bensínsbíls er að öllu upplagi eins og í bensínbíl sömu gerðar og stjórn- og öryggisbúnaður hinn sami. Í akstri finnur ökumaður engan mun á því hvort vélin gengur fyrir metani eða bensíni. Ökutæki með tvíbrennivél, metan/bensínbílar, henta sérlega vel til umhverfisvænna og hagfelldra orkukerfisskipta í samgöngum á Íslandi eins og erlendis á meðan dreifikerfi fyrir metan er að byggjast upp og gerir okkur Íslendingum kleift að viðhalda, á sama tíma, ferðafrelsi og samgönguöryggi þjóðarinnar með hagfelldum hætti. Með metan/bensínbílum hefur vítahringurinn verið rofinn um að metanbílum fjölgi ekki fyrr en afgreiðslustöðum fjölgi og að afgreiðslustövum fjölgi ekki fyrr en ökutækjum fjölgi. Þar sem metan/bensínbílar eru ódýrari en bensínbílar sömu gerðar, þökk sé niðurfellingu stjórnvalda á vörugjaldi slíkra bíla, hefur almenningur allt að vinna með vali á metan/bensínbíl. Afgreiðslustöðvum fyrir metan eldsneyti fjölgar hratt um allan heim og mun einnig fjölga á Íslandi á næstu misserum og árum.








