VEFTRÉ
FYRIRSPURN
LEIT  
   Metan hf. Gufunesi 112 Reykjavík  Sími 520 2200  Fax  520 2209  [ hafðu samband ]

29.01.2010
Mun alþjóðasamfélagið greiða Ecuador fyrir að framleiða ekki olíu á Amazonsvæðinu?
Fander Falconí, utanríkisráðherra Ecuador
Ecuador býr yfir olíuauðlindum í regnskógum á Amazonsvæðinu sem alþjóðasamfélagið leggur mikla áherslu á að verði ekki nýttar af margvíslegum ástæðum, umhverfisástæðum. Spurningin er, hversu mikils alþjóðasamfélagið metur í raun verndun regnskóganna.

Eru þjóðir heims reiðubúnar að kosta einhverju til, svo tryggja megi að ekki verði enn frekar gengið á þá mikilvægu auðlind sem regnskógarnir eru fyrir jarðarbúa. Með þessum hætti leggur Ecuador fram fyrirspurn til alþjóðasamfélagsins við ákvörðun um frekari framleiðslu á olíu í landinu.

Í þessu samhengi hefur verðmiðinn verið kynntur - 4,6 billjónir US$ eða um 585 milljarðar króna miðað við gengi krónunnar í dag ( 127kr/USD). Um er að ræða rífleg þjóðarútgjöld íslenska ríkisins á árinu 2010 (um 556 milljarðar króna). Þjóðverjar, Bretar, Frakkar og Ítalir hafa sýnt málinu áhuga og fulltrúi Sameinuðu þjóðanna telur verkefnið verðskulda alþjóðlega stuðning.

Fróðlegt verður að fylgjast með framvindu þess mál og því fordæmi sem málalyktir kunna að hafa í för með sér.

Sjá frétt:

08.03.2010 Metanvæðing leigubíla - uppfærsla á bensínbíl í metan/bensínbíl borgar sig á nokkrum mánuðum!
12.02.2010 Toyota eykur framboð á metanbílum - kynnir Corolla Altis CNG metanbíl
12.02.2010 Metan hlýtur uppreisn æru í Þýskalandi
05.02.2010 Nýir metan/dísil-vörubílar frá Volvo í reynsluakstri
05.02.2010 Nýr metanvörubíll frá HINO á markað í Tælandi