VEFTRÉ
FYRIRSPURN
LEIT  
   Metan hf. Gufunesi 112 Reykjavík  Sími 520 2200  Fax  520 2209  [ hafðu samband ]

29.01.2010
Stjórnvöld í Los Angales stefna að 100% orkuskiptum yfir í metan eldsneyti.
Metan ökutækjaeldsneyti er í mikilli sókn í Bandaríkjunum og um allan heim og dreifikerfi að stóreflast. Stjórnvöld í Los Angeles hafa markvisst viðhaft orkuskipti í samgöngum frá notkun dísilolíu yfir í metan eldsneyti. Helmingur af bílaflota borgarinnar ekur í dag á metan eldsneyti hvort heldur um er að ræða metan eldsneyti í formi lofttegundar eða vökva.


Nýverið kynntu stjórnvöld áform um að opna fimmtu afgreiðslustöðin fyrir metan eldsneyti í vökvaformi og stærstu metanstöð í heiminum til þessa, North Central afgreiðslustöðina. Markviss fjölgun stöðva er áformuð á næstu misserum og að því stefnt að skipta út 750 flutningabílum og stærir ökutækjum á vegum borgarinnar svo allur bílaflotinn gangi fyrir metan eldsneyti.

Metan eldsneyti er unnt að hafa á eldsneytisgeymi ökutækja í formi lofttegundar ( CNG, Conpressed Natural Gas) eða í vökvaformi ( LNG, Liquid Natural Gas). Í vökvaformi er unnt að koma á bílgeymi mun meira orkuinnihaldi á rúmmálseiningu og því kjörið fyrir stærri ökutæki að nýta eldsneytið á því formi. Flestir fólksbílaframleiðendur í dag bjóða bíla með svonefndri tvíbrennivél ( metan/bensínvél) sem gengur fyrir metani en getur einnig gengið fyrir bensíni ef á þarf að halda.

Flestar gerði slíkra fólksbíla nýta metan eldsneyti í formi lofttegundar á bílgeyma sína. Drægi fólksbíla á metanbyrgðum hefur aukist mikið með hönnunar-og tækniþróun þessarar aldar. Í dag komast fólksbílar með metan/bensínvél um og yfir 500 km á metanbyrgðum og hafa einnig bensíngeymi sem tryggir akstursgetu upp á annað eins - alls um 1000 km akstur án áfyllingar ef á þarf að halda.

Mikil þróun hefur átt sér stað á tækjum og búnaði til nýtingar og afgreiðslu á metan eldsneyti á þessari öld og samkeppni orðin mikil á öllum sviðum er lítur að nýtungu á eldsneytinu enda öllum að verða ljós sá mikli og margþætti samfélags-og umhverfislegi ávinningur sem orkuskipti yfir í metan eldsneyti hefur í för með sér.

Frétt þessi varpar ljósi á mikilvægi þess að stjórnvöld og kjörnir fulltrúar leiði vagn orkuskipta, forðist ekki að taka ákvarðanir á grundvelli upplýsinga um heildrænan ávinning og hagfellt leiðarval þótt að slíkar ákvarðanir kunni að snerta hendur markaðarins með einum eða öðrum hætti.

Endursögn og viðbætur við meðfylgjandi frétt.
Sjá frétt:

09.03.2010 Tölfræði í tengslum við metanframleiðslu
08.03.2010 Metanvæðing leigubíla - uppfærsla á bensínbíl í metan/bensínbíl borgar sig á nokkrum mánuðum!
12.02.2010 Toyota eykur framboð á metanbílum - kynnir Corolla Altis CNG metanbíl
12.02.2010 Metan hlýtur uppreisn æru í Þýskalandi
05.02.2010 Nýir metan/dísil-vörubílar frá Volvo í reynsluakstri