Ashok Leyland sem er dótturfyrirtæki breska vörubílaframleiðandans Leylands hefur sett á markað á Indlandi mjög merkilegan strætisvagn. Umræddur strætisvagn er af svokallaðri tengi-tvinnbílategund, þ.e.a.s. hann gengur bæði fyrir metan og rafmagni og búinn endurhlaðanlegum rafhlöðum (plug-in). Með því að tvinnbílar brenni metani í stað bensíns næst margþættur ávinningur, rekstrarlegur og umhverfislegur.
Segja má að slíkir bílar henti mjög vel við íslenskar aðstæður þar sem við Íslendingar framleiðum rafmagn á umhverfisvænan hátt og eigum ótakmarkaða möguleika á framleiðslu og vinnslu á íslensku metani. Með því móti gætum við Íslendingar orðið sjálfbærir í stórauknum mæli um öflun orku til samgangna. Hitt er svo annað að ef hægt er að knýja strætisvagna með slíkum vélbúnaði þá er ekkert því til fyrirstöðu að framleiða smærri bíla og jafnvel báta með slíkum vélbúnaði.
Sjá nánari upplýsingar um þennan merkilega strætó
hér: