VEFTRÉ
FYRIRSPURN
LEIT  
   Metan hf. Gufunesi 112 Reykjavík  Sími 520 2200  Fax  520 2209  [ hafðu samband ]

11.01.2010
Heimsóknum á heimasíðu Metan fjölgaði um 41% milli ára.
Metan hf óskar landsmönnum öllum gleðilegs árs og friðar á nýju ári og þakkar góðar viðtökur á liðnum árum. Síðastliðið ár markar tímamót um margt í starfi félagsins og ljóst að áhugi í samfélaginu hefur aukist mikið fyrir verkefnum og markaðsboði félagsins sem endurspeglast meðal annars í fjölgun heimsóknum á heimasíðu félagsins.

Heimsóknir á árinu 2009 voru alls 53.839 og um aukningu að ræða frá árinu á undan sem nemur 41%. Ljóst er að hinn mikli og margþætti ávinningur, sem metanvæðing í íslenskum samgöngum hefur í för með sér, er að renna upp fyrir landsmönnum og grundvöllur að skapast fyrir stækkun þeirra skerfa sem stigin hafa verið frá stofnun félagsins árið 1999. Ný heimasíða er í vinnslu og mun verða tekin í notkun í þessum mánuði.

Í nóvember á síðastliðnu ári birti félagið frétt í fréttaveitu á heimasíðunni um ýtarlegustu og áreiðanlegustu skýrslu sem birt hefur verið um framtíðarhorfum orkuskipta í samgöngum í heiminum ( NAS-skýrslan) og stöðu helstu valkosta sem unnið er með í heimsþorpinu í því skini. Þar kom skýrt fram að samgöngutæki sem gengur fyrir metan eldsneyti sem unnið er úr lífrænu efni af yfirborði jarðar ( s.s. íslenskt metan) hefur mikla yfirburði yfir aðra valkosti - rekstrarlega, umhverfislega og þjóðhagslega yfirburði.

Skýrslan varpar ljósi á heildrænt mat á áhrifum mismunandi samgöngutækja og orkukerfa hvort heldur um er að ræða eldsneyti fyrir brunavél eða orkukerfi sem byggir á rafhlöðum og rafmagni. Skýrslan miðast við líftímagreiningu ökutækja, íhluta og orkukerfis. Fjárhagslega kom samgöngutæki sem nýtir metan eldsneyti best út og að sama skapi afgerandi best í umhverfislegu tilliti. Þessi niðurstaða kom mörgum á óvart þar sem skýrslan skoðaði heildarávinning metanvæðingar miðað við að metan eldsneytið væri unnið úr jarðgasi.

Við sjáum því með skýrum hætti þá afgerandi stöðu sem við Íslendingar getum skapað með okkar íslenska metani unnu úr lífrænu efni (lífmassa) frá yfirborði jarðar. Að sama skapi kom það mörgum verulega á óvart að rafmagnsbíllinn og raf/bensínbíllinn ( tvinn-bíllinn) hafi komið mun verr út í umhverfislegu tilliti, en bensínbíll sömu stærðar. Fjárhagslega á rafbíllinn langt í land sem hagfelldur samgöngukostur í samanburði við metanbílinn og er þá horft á raunsæjan og heiðarlegan hátt á fyrirsjáanlega þróun mála fram til ársins 2030 og miðað við sambærilegt ferðafrelsi og samgönguöryggi mismunandi ökutækja.

Við Íslendingar búum fyrir dýrmætri eign til hagfelldra orkuskipta í samgöngum þar sem þekking og geta SORPU bs til framleiðslu á metan eldsneyti er annars vegar. SORPA bs framleiðir í dag metan ökutækjaeldsneyti í hæsta gæðaflokki með allt að 98% hreinleika en til samanburðar má geta þess að víðast hvar í Evrópu er hreinleikinn um 90%. Í dag nýtum við aðeins um 10% af framleiðslu okkar og getum því með gríðarlega hagfelldum hætti aukið notkun okkar á íslensku metani og sparað þjóðinni mikla fjármuni og sparð mikinn gjaldeyri.

Samkvæmt NAS-skýrslunni, stenst enginn vélknúinn samgöngumáti umhverfislegan samanburð við okkar valkost um að aka á íslensku metani. Og er þá allt ósagt um þann mikla þjóðhagslega ávinning sem frekari metanvæðing hefur í för með sér fyrir íslenskt samfélag - nýsköpun, atvinnusköpun og aukið orkuöruggi með sjálfbærum hætti.

Á þessari öld munum við Íslendingar vissulega einnig horfa til vetnis og rafmagns með væntingar um hagfelda valkosti til að draga úr notkun á jarðefnaeldsneytis í samgöngum. Og jafnframt horfa til þess að nýta metanól, lífdísil og etanóli í þeim mæli sem hagfellt kann að reynast. Markaðsboð þessara valkosta þarf þó að batna til muna til að standast samanburð við ávinninginn af frekari metanvæðingu.

Öllum má vera ljóst að frekari metanvæðing í samgöngum er í mikilli sókn um allan heim og mun gegna miklu hlutverki við orkuskiptin í heiminum á þessari öld. Og sérstaklega í löndum og meðal þjóða þar sem aðstæður eru með þeim hætti sem við Íslendingar búum yfir og við - þekking og geta til staðar, landnæði mikið og þjóðin fámenn. Sú staðreynd að unnt er að uppfæra bensínbíla svo þeir geta einnig gengið fyrir metan eldsneyti hefur opnað augu ráðamanna og almennings fyrir þeirri forgangsröðun sem við þurfum að viðhafa í orkuskiptum til að geta náð skjótum og varanlegum árangri.

Einar Vilhjálmsson, markaðsstjóri


09.03.2010 Tölfræði í tengslum við metanframleiðslu
08.03.2010 Metanvæðing leigubíla - uppfærsla á bensínbíl í metan/bensínbíl borgar sig á nokkrum mánuðum!
12.02.2010 Toyota eykur framboð á metanbílum - kynnir Corolla Altis CNG metanbíl
12.02.2010 Metan hlýtur uppreisn æru í Þýskalandi
05.02.2010 Nýir metan/dísil-vörubílar frá Volvo í reynsluakstri