VEFTRÉ
FYRIRSPURN
LEIT  
   Metan hf. Gufunesi 112 Reykjavík  Sími 520 2200  Fax  520 2209  [ hafðu samband ]

17.12.2009
Volvo hefur framleiðslu á metaneldsneyti
Terracastus Technologies, sem er dótturfyrirtæki  Volvo, hefur gert samning við fyrirtækið Nordvästra Skånes Renhållningsbolag (NSR) um framleiðslu á fljótandi metani úr lífrænum úrgangi sem fellur til í sveitarfélaginu. Marmiðið með samstarfinu er að draga úr losun CO2 (koldíoxíð frá útblæstri bíla) um 40.000 tonn á ári hverju með því að skipta dísilbílum út fyrir metanbíla.

Áætlanir gera ráð fyrir að á þriðja ársfjórðungi 2011 muni umrædd metanframleiðslan ná hámarksafköstum. Þá mun framleitt magn af fljótandi metani koma í stað 15 milljón lítra af dísilolíu á ári hverju sem gerir stöðina að einni stærstu sinnar tegundar í heimi. Volvo hefur markað sér þá stefnu að fjárfesta og taka virkan þátt í verkefnum af þessu tagi.

Þýtt og endursagt: GNVMAgazine

09.03.2010 Tölfræði í tengslum við metanframleiðslu
08.03.2010 Metanvæðing leigubíla - uppfærsla á bensínbíl í metan/bensínbíl borgar sig á nokkrum mánuðum!
12.02.2010 Toyota eykur framboð á metanbílum - kynnir Corolla Altis CNG metanbíl
12.02.2010 Metan hlýtur uppreisn æru í Þýskalandi
05.02.2010 Nýir metan/dísil-vörubílar frá Volvo í reynsluakstri