VEFTRÉ
FYRIRSPURN
LEIT  
   Metan hf. Gufunesi 112 Reykjavík  Sími 520 2200  Fax  520 2209  [ hafðu samband ]

Eldri fréttir á metan.is
28.12.2005

KVIKNAR Í BÍL Í EIGU SORPU

Þriðjudaginn 27. desember kviknaði í bíl í eigu SORPU bs. Gerðist þetta á Miklubrautinni um kl. 15:00. Var þetta eitt af metanknúnum ökutækjum fyrirtækisins af gerðinni Citroen Berlingo, árgerð 2002, eitt af 6 ökutækjum slíkrar tegundar í eigu SORPU og eitt af 13 metanknúnum ökutækjum fyrirtækisins.

Eldsupptök
Ekki er vitað um eldsupptök og er unnið er að því að rannsaka málið. Þó beinist ákveðinn grunur að rafkerfi bílsins þó að á þessu stigi geti einungis verið um getgátur að ræða. Seljandi ökutækisins og umboðsmaður (Brimborg) er með málið í skoðun. SORPA bs og Metan hf ásamt Brimborg/Citroen munu vinna að því að upplýsa eins og kostur er hvað gerðist m.a. til að koma í veg fyrir að slíkt geti endurtekið sig.
 
Annað ökutæki sömu tegundar brann fyrir nokkrum vikum og sendi framleiðandi bílsins (Citroen) og gasbúnaðarins 4 menn hingað til lands til að rannsaka orsök þess bruna. Niðurstöður liggja ekki fyrir en gera má ráð fyrir að svipuð vinnubrögð verði varðandi þennan nýja bruna.

Minni íkveikjuhætta
Almennt er minni íkveikjuhætta af metani en venjulegu ökutækjaeldsneyti eins og bensíni og díselolíu. Mjög erfitt er að kveikja í metani miðað við t.d. bensín. Til samanburðar má skoða sjálfsíkvekjuhitastig („autoignition temperature“) mismunandi eldsneytis:

Bensín ~ 257 °C
Díselolía ~ 316 °C
Metan ~ 540 °C

(Heimild: www.eere.energy.gov/afdc/pdfs/fueltable.pdf).

Að auki þarf metanið að vera í mjög ákveðinni blöndu súrefnis til að það brenni yfir höfuð (5-15 % af rúmmáli í lofti).

Metanið er geymt á kútum við um 200 bar þrýsting (samanborið við venjulegan grillgaskút sem er 10-15 bör). Þetta er sá hámarksþrýstingur sem gasið er geymt við á ökutækinu en framleiðendur prófa kútana við hærri þrýsting. Raunverulegt brotþol kútanna er venjulega 1.200-1.500 bör. Kútarnir eru síðan útbúnir með sérstökum ventlum sem létta á kútunum fari þrýstingur yfir ákveðin mörk. Metanökutæki eru síðan árekstrarprófuð eins og önnur ökutæki.


5 milljónir metanökutækja í umferð
Í dag eru um 5 milljónir metanökutækja í umferð, flest í Suður-Ameríku. Í Evrópu eru flest ökutækin á Ítalíu sem á sér langa hefð í notkun jarðgass (metans). Þessar þjóðir, sem og aðrar sem nota mikið metan hafa ekki séð ástæðu til að vera með sérstakan viðbúnað vegna þessara ökutækja kannski vegna þess að í þeim löndum er gasnotkun víðtækari en þekkist hér á landi. Íslendingar eru ekki jafn vanir gasnotkun og margar aðrar þjóðir og því ekki skrýtið að óhöpp tengd gasnotkun veki eftirtekt og kalli fram spurningar. Nánari upplýsingar um eiginleika metans og umhverfisávinning af notkun þess má finna á heimasíðu Metans hf, www.metan.is 
 


09/06/2005

Tímamót í notkun metans á Íslandi



Fimmtudaginn 9. júní voru, á afgreiðslustöð Essó við Bíldshöfða, formlega afhentir og teknir í notkun tveir nýir vinnubílar í þjónustu einkafyrirtækja, sem aka á metani, vistvænu íslensku eldsneyti, sem safnað er á urðunarstað SORPU bs. í Álfsnesi. Um er að ræða Mercedes Benz Econic krókbíl sem er í eigu GT verktaka. GT verktakar sjá m.a. um flutning á bögguðum og óbögguðum úrgangi frá móttökustöð SORPU í Gufunesi á urðunarstaðinn í Álfsnesi, ásamt því að flytja timburkurl til endurnýtingar hjá Íslenska járnblendifélaginu hf. á Grundartanga.

Það má því halda því fram að bíllinn verði sjálfbær um orku, þar sem hann mun flytja þann úrgang sem síðar verður að eldsneytinu sem hann gengur fyrir, metani. Hér er því um nokkur tímamót að ræða. Bíllinn er fluttur inn af Ræsi hf.   Hinn bíllinn er Ford F450 sem er í eigu Efnamóttökunnar hf. Hann verður m.a. notaður til þess að flytja spilliefni frá endurvinnslustöðvum SORPU bs. til Efnamóttökunnar hf. þar sem þau eru meðhöndluð og send til eyðingar hjá sérhæfðum aðilum. Bíllinn mun einnig þjóna öðrum viðskiptavinum Efnamóttökunnar sem óska eftir söfnunarþjónustu. Með því að nýta metan, íslenskt vistvænt eldsneyti, lágmarkar Efnamóttakan hf. útblástur gróðurhúsalofttegunda vegna flutninga á spilliefnum eins og kostur er. Bíllinn var fluttur inn af IB ehf. á Selfossi.


23/12/2004 

Áhugaverð heimasíða og fréttablað

Síðan www.miljofordon.se  er heimasíða fyrir Miljöfordon.se sem geymir áhugavert efni um umhverfisvæn ökutæki og eldsneyti. Á síðunni er hægt að nálgast ýmsar upplýsingar um mismunandi umhverfisvænt eldsneyti. Einnig er hægt að fá upplýsingar um stór og smá ökutæki sem ganga fyrir ýmsum tegundum af vistvænu eldsneyti. Einnig er hægt að gerast áskrifandi að fréttabréfi þar sem áhugaverðar fréttir koma fram. Síðan er rekin af samtökum nokkurra sveitarfélaga í Svíþjóð (Gautaborg, Stokkhólmi og Malmö), sem og nokkurra Evrópskra verkefna, Trendsetter, Civitas og Tellus.
Nýjustu fréttir af þessari síðu eru m.a. að sænska ríkisstjórnin hefur ákveðið að helmingur allra ökutækja yfirvalda séu vistvænir (yfirvöld keyptu 1.500 ökutæki á árinu 2003). Lesið meira um þetta á www.miljofordon.se/nyheter/main.asp?iNewsID=323  
Önnur frétt fjallar um að nýir etanólbílar frá Volvo eru væntanlegir á göturnar þar á meðal S40 og V50 bílarnir. Jafnframt hefur verðið á S60, S80 og V70 metanökutækum lækkað í Svíþjóð. Á síðunni má einnig lesa um að Opel hefur kynnt nýjan metanbíl í Svíþjóð en sá er af gerðinni Opel Combo. Er bæði hægt að fá hann sem lítinn sendiferðabíl og sem einkabíl. Forvitnilegt að vita hvenær umboðsaðilinn hér á landi býður upp á slík ökutæki, því auk þessa bíls bíður Opel bæði Astra og Vectra bílana fyrir metan.

Lesið ýmislegt fleira áhugavert á heimasíðunni!!

10/12/2004
 

Umhverfisráðherra kynnir sér starfsemi Metan hf.
Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri Metan hf. sýnir Sigríði Önnu Þórðardóttur, umhverfisráðherra virkni metanvinnslunnar í Álfsnesi.

Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri Metan hf. sýnir Sigríði Önnu Þórðardóttur, umhverfisráðherra virkni metanvinnslunnar í Álfsnesi.

Þann 3. desember heimsótti umhverfisráðherra Frú Sigríður Anna Þórðardóttir Metan hf. og kynnti sér starfsemina. Með umhverfisráðherra í för var Haraldur Jóhannessen aðstoðarmaður ráðherra.

Ráðherra var kynnt framleiðsla SORPU bs. á hreinsuðu metani í Álfsnesi sem notað er sem ökutækjaeldsneyti á 46 ökutæki hér á höfuðborgarsvæðinu. Einnig skoðaði ráðherra rafstöð Orkuveitu Reykjavíkur sem framleiðir um 850 kW af rafmagni, nægjanlegt rafmagn fyrir 800 – 1.000 heimili.

Í Álfsnesi hitti ráðherra stjórn Metan hf. ásamt framkvæmdastjóra og kynnti ráðherra sér m.a. tilurð metans sem eldsneytis/orkugjafa og aðdraganda stofnunar fyrirtækisins Metan hf. Rætt var vítt og breytt um þá möguleika sem metanið býður upp á og þá möguleika sem ríkisvaldið hefur, til að ganga á undan með góðu fordæmi hvað varðar vistvænt ökutækjaeldsneyti. Voru m.a. viðraðar hugmyndir um hvernig ríkisvaldið getur ýtt undir þróun í þessum málaflokki.

Stjórn Metan hf. og starfsmenn þakka fyrir ánægjulega heimsókn og uppbyggjandi viðræður.


29/10/2004

Frá ráðstefnu um vistvænt eldsneyti

Á ráðstefnu Orkustofnunar um vistvænt eldsneyti 26. október sl. var kynntur Vettvangur um vistvænt eldsneyti sem er verkefni vistað hjá Orkustofnun. Vettvangurinn er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar að efla starfsemi hins opinbera í að kanna hvaða leiðir eru fyrir hendi til þess að stuðla að sparnaði eða innleiðingu nýrra orkugjafa í samgöngum og fiskiðnaði.

Á ráðstefnunni voru flutt fjölmörg erindi sem hægt er að skoða á heimasíðu OS www.os.is.

Eitt þeirra flutti framkvæmdastjóri Metan hf. Björn H. Halldórsson. Erindið bar yfirskriftina: Nýting metans frá lífrænum efnum – reynsla og möguleikar.

Smellið hér til að nálgast erindið
20/09/2004

Metan tekur þátt í Evrópsku samgönguvikunni 2004 
Föstudagurinn 17. september verður tileinkaður vistvænum akstri og bílnum í
borgarlandslaginu.
Ráðstefnan Borgin í bítið, Pabbi, mamma, börn og bíll hefst klukkan 8:15 á Grand hótel. Sjá nánar.
Þar munu SORPA og Metan hf. kynna metanbíla og fólki gefst færi á að reynsluaka Volkswagen Golf Variant og Volvo S80 með tvíbrennihreyflum en þeir brenna bæði metangasi og bensíni. Bílarnir verða við Grandhótel að ráðstefnu lokinni.

Um Evrópsku samgönguvikuna

Dagana 16. til 22. september tekur Reykjavíkurborg, ásamt sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu, þátt í Evrópsku samgönguvikunni. Í ár taka tæplega 350 borgir í löndum víðsvegar í Evrópu þátt í verkefninu. Meginþema vikunnar í ár er „Öryggi barna í umferðinni”, nokkuð sem alltaf má betrumbæta.

31/08/04

Kaup á 2 metanvögnum samþykkt hjá Strætó bs.
Á heimasíðu Strætó bs. kemur fram að stjórn byggðasamlagsins hefur m.a. samþykkt kaup á 2 metanknúnum strætisvögnum af Scania gerð frá Heklu hf. Fram kemur að kaupin séu liður í að gera starfsemina umhverfisvænni og að minnka útblástur skaðlegra efna.

Sjá nánar http://www.bus.is/UmFyrirtaekid/frettir/nr/203  

 30/04/2004
  FLEIRI MYNDIR


Metan hf. á Dögum umhverfisins 
Metan hf. tók þátt í sýningu í tilefni "Daga umhverfisins" í Smáralind sem haldinn var helgina 24. og 25. apríl 2004. Umhverfisfræðsluráð stóð fyrir sýningunni.

Margir lögðu leið sýna að kynningarsvæði Metan hf til að skoða ökutæki sem gengur bæði fyrir metani og bensíni en bíllinn var kynntur í samráði við Heklu og Olíufélagið ehf. Er ljóst af viðbrögðum gesta að mikill áhugi er hjá almenningi, á að leggja sitt af mörkum til að draga úr loftmengun. Vonandi skilar þessi sýning fleiri slíkum ökutækjum á götur borgarinnar en þau eru nú 44 talsins
21/04/2004 

Metan hf. á Dögum umhverfisins í Smáralind

Helgina 24. og 25. apríl boðar umhverfisfræðsluráð til sýningarinnar Dagar umhverfisins í Smáralind. Metan hf., í samstarfi við Heklu hf. og Olíufélagið ehf., gefa sýningargestum kost á að skoða metanbíl sem nýtir íslenskt vistvænt eldsneyti. Gestir geta jafnframt kynnt sér umhverfislegan ávinning af notkun metans sem ökutækjaeldsneyti.

25. apríl er Dagur umhverfisins og hefur verið haldinn hátíðlegur undanfarin ár. Sýningin verður opin sunnudaginn 24. apríl kl. 11-18 og laugardaginn 25. apríl kl. 13-18.

Nánari upplýsingar eru á vef umhverfisráðuneytisins
5/12/2003

Fréttatilkynning frá Metan hf.
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) ákvað síðsumars að gerast hluthafi í Metan hf. Er það mikið fagnaðarefni fyrir aðra hluthafa fyrirtækisins að OR sýni þessu merka umhverfismáli stuðning með svo afgerandi og beinum hætti, en OR hefur nú í rúmt ár framleitt raforku úr metangasi í Álfsnesi. Hluthafar í dag eru því orðnir 4, þ.e.a.s. SORPA, OR, Olíufélagið ehf. og Nýsköpunarsjóður hf.

Hluthafafundur var haldinn þann 19. nóvember þar sem var kosin ný stjórn fyrir félagið. Í nýrri stjórn sitja Jón Atli Benediktsson og Erling Ásgeirsson fyrir SORPU, Þorleifur Finnsson fyrir OR, Heimir Sigurðsson fyrir Olíufélagið ehf. og Hermann Ottósson fyrir Nýsköpunarsjóð hf. Jón Atli Benediktsson er stjórnarformaður og Heimir Sigurðsson varaformaður.

Jafnframt því sem Orkuveitan gerðist hluthafi í Metan hf. jók SORPA eignarhluta sinn og leysti einnig til sín hreinsistöðina í Álfsnesi. Frá 1. september 2003 hefur því SORPA séð um hreinsun á gasi til notkunar á ökutæki. Metan hf mun hér eftir einbeita sér að því að auka hlut metans sem ökutækjaeldsneytis jafnframt því að þróa og stækka aðra markaði fyrir metan.
Nánar um fyrirtækið
12/08/2003

Nýr metanbíll hjá SORPU 

Fólksbíll af gerðinni Volkswagen Golf Variant hefur bæst í hóp metanbílaflota SORPU. Bílarnir eru nú fjórtán talsins. Þetta er fyrsti fólksbíllinn sem fluttur er til
  FLEIRI MYNDIR
landsins en flestir bílarnir eru litlir sendiferðabílar af gerðinni Volkswagen Caddy og Citroen Berlingo auk nokkurra stærri bíla t.d. VW Transporter og VW Transporter pick-up. Á höfuðborgarsvæðinu eru því 44 tvíorku bílar sem geta keyrt hvorutveggja á metangasi og bensíni. Þessir bílar eru allir í eigu fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu.