VEFTRÉ
FYRIRSPURN
LEIT  
   Metan hf. Gufunesi 112 Reykjavík  Sími 520 2200  Fax  520 2209  [ hafðu samband ]

ENGVA news
ENGVA eða „EUROPEAN NATURAL GAS VEHICLE ASSOCIATION“ eru evrópsk samtök þeirra er berjast fyrir framgangi og notkun gasbíla í Evrópu. Samtökin eiga höfuðstöðvar sínar í Hollandi. Metan hf. hefur verið félagi í þessum samtökum allt frá því að fyrirtækið var stofnað. Samtökin halda úti öflugri heimasíðu www.engva.org þar sem hægt er að nálgast ýmsar gagnlegar upplýsingar. Samtökin gefa einnig út fréttabréf einu sinni í mánuði þar sem fram kemur það helsta sem er að gerast í málefnum tengdum gasbílum í Evrópu. Hér á heimasíðu Metan hf. verður hér eftir hægt að nálgast nýjasta hefti fréttabréfsins á hverjum tíma. Fréttabréfið er á ensku en fjallað verður um efni blaðsins í stórum dráttum á íslensku. 

Hér eru skammstafanir sem notaðar eru í tengslum við gas en oft vill vera ruglingur í notkun þeirra:

LPG = „Liquified Petroleum Gas“, fljótandi gas; bútan eða própan
LNG = „Liquified Natural Gas“, fljótandi jarðgas (metan)
CNG = „Compressed Natural Gas“, þjappað jarðgas (metan)
CBG = „Compressed Biogas“, þjappað biogas (eða metan)
NGV = „Natural Gas Vehicle“, ökutæki er gengur fyrir jarðgasi (metani)




Til þess að skoða fréttabréfið þarf Acrobat Reader.