VEFTRÉ
FYRIRSPURN
LEIT  
   Metan hf. Gufunesi 112 Reykjavík  Sími 520 2200  Fax  520 2209  [ hafðu samband ]

Umhverfisáhrif


Íslenskt metan
,,Senn mun Íslands umferð batna
eflist rekstur, líf og getan
Hagur vex á grundum gatna
gæfusporið Íslenskt metan." 
                                            ev.


Það metan sem myndast við niðurbrot lífrænna efna er í raun bundin sólarorka. Umbreyting metans í koldíoxíð (með bruna) bætir því ekki koldíoxíði í andrúmsloftið, heldur er eingöngu skilað til baka því sem plönturnar unnu úr andrúmsloftinu. Það er því um lokað hringrásarferli að ræða.

Þegar metan er notað sem eldsneyti á bifreiðar myndast koldíoxíð í útblæstri bifreiðarinnar eins og áður. Þessi útblástur er hins vegar í reynd aðeins flutningur á myndunarstað þess koldíoxíðs, sem að öðrum kosti verður til við bruna metans á urðunarstaðnum.

Aukning koldíoxíðs er því engin við brennslu þess í bílvél en við notkun á metani sparast hins vegar sú koldíoxíðsmengun sem annars hefði orðið til vegna bruna þess eldsneytis sem metanið kemur í staðinn fyrir.

Sá sparnaður er um 260 gr. af koldíoxíði á hvern ekinn kílómetra fyrir meðalstóra bensínbifreið.

Næsta umhverfi bifreiða
Sé litið á næsta umhverfi bifreiðarinnar, minnkar útblástur koldíoxíðs um 20% miðað við bensín sem orkugjafa vegna betri nýtni metans en bensíns. Mestur umhverfisávinningur er í næsta umhverfi bifreiðarinnar vegna þess að að metan er mun hreinna eldsneyti en bæði bensín og díselolía eins og fram kemur í eftirfarandi :

Útblástursefni miðað við bensínvél:
Koldíoxíð 20% minna
Kolmónoxíð 74% minna
Köfnunarefnisoxíð 36% minna
Hærri kolvetni (sót) 60% minna

Útblástursefni miðað við diselvél:
Koldíoxíð 20% minna
Kolmónoxíð 90% minna
Köfnunarefnisoxíð 60% minna
Hærri kolvetni (sót og ryk) 80% minna

Sjá nánar

Annað mikilvægt atriði er að vélar sem brenna metani eru hljóðlátari en aðrar vélar sem notaðar eru til að knýja bifreiðar auk þess sem reynslan hefur sýnt að margir hlutir vélanna endast mun betur sökum hreinleika eldsneytisins (s.s. kerti, olíuverk, smurolía).
Metan er ekki eitruð lofttegund. Metan er léttara en loft og gufar því mjög fljótt upp.