VEFTRÉ
FYRIRSPURN
LEIT  
   Metan hf. Gufunesi 112 Reykjavík  Sími 520 2200  Fax  520 2209  [ hafðu samband ]

Notkunarmöguleikar
Notkunarmöguleikar á óhreinsuðu hauggasi eru nokkrir vel þekktir og reyndir.

Rafmagnsframleiðsla
Framleiðsla á rafmagni er mjög víða þekkt og eru til margar tegundir mótora sem ganga fyrir óhreinsuðu hauggasi.  Hér á landi er metan nýtt til raforkuframleiðslu.

Orkugjafi í iðnaði
Nota má óhreinsað hauggas í margskonar iðnaði en sú forsenda liggur að baki að slík starfsemi sé rekin innan hæfilegrar fjarlægðar frá urðunarsvæði svo hægt sé að flytja hauggasið í rörum að notkunarstað.  Hér á landi er í gangi tilraunaverkefni um notkun metans í iðnaði.  Um er að ræða samstarfsverkefni Metans hf. og Borgarplasts hf. 

Bílasprautun
Frá því um mitt ár 2004 þá hefur Múli, bílaréttingar og sprautun ehf. rekið metanþurrkklefa sem þeir keyptu og fluttu inn frá Ítaliu.  Þeir hjá Múla státa einnig af því að nota eingöngu íslenska orku á sínu verkstæði þ.e.a.s metan, heitt vatn og rafmagn.

Ökutækjaeldsneyti
Notkun á metani sem eldsneyti á bíla er löngu þekkt og mikil reynsla fyrirliggjandi. Til þess að það sé hægt verður að skilja metanið frá koldíoxíðinu í hauggasinu.  Á Íslandi hefur metan verið nýtt sem ökutækjaeldsneyti frá árinu 2000.

Upphitun
Einfaldast er að hita vatn til upphitunar og er það víða gert. Metan er ekki nýtt með þessum hætti hérlendis.