VEFTRÉ
FYRIRSPURN
LEIT  
   Metan hf. Gufunesi 112 Reykjavík  Sími 520 2200  Fax  520 2209  [ hafðu samband ]

Um fyrirtækið
Metan hf. var stofnað 20. ágúst 1999 af Sorpeyðingu höfuðborgarsvæðisins bs. og Aflvaka hf.  en núverandi eigendur eru SORPA bsREI,  N1 hf. og Orkuveita Reykjavíkur.

Aðalástæða stofnunar félagsins var að samkvæmt starfsleyfi SORPU ber fyrirtækinu að safna hauggasi, sem myndast við rotnum lífrænna úrgangsefna á urðunarstað fyrirtækisins í Álfsnesi og eftir fremsta megni að nýta það. Til að uppfylla þá skyldu var Metan hf. stofnað.  Tilgangur félagsins er dreifing og sala á metani og framleiðsla orku úr metani, þróun á umhverfisvænum orkugjöfum og önnur skyld starfsemi svo og rekstur fasteigna og lánastarfsemi.
 
Félagið hefur gert þjónustusamning við SORPU um kaup á skrifstofu- og rekstrarþjónustu.  Heimilisfangið er:

Metan hf.
Gufunesi
112 Reykjavík

Sími:  520 2200 
Fax: 520 2209
Hafðu samband

Vefumsjón: Birgir Már Guðmundsson, Þróunar- og tæknideild SORPA.



Félagið er skráð undir nafninu Metan hf. í þjóðskrá, fyrirtækjaskrá, firmaskrá og hlutafélagaskrá.  Starfsemi Metan hf. er ekki háð starfsleyfi.  Metan hf. er félagi í European Gas Vehicle Association (ENGVA)
Kt. 530999-2469
Vsk.nr. 64146