English   |   Forsíða   |   Veftré   |   Hafa samband

Metanverð

Verð á íslensku metani = 126 kr / Nm3    
Verð á íslensku metani m.v. orkujafngildi 95-oktan bensíns ~ 120 kr/L .
Miðað við jafngildi orkuinnihalds:  Einn Nm3 af 100% metani = 1,12 L af 95-oktana bensíni.  Sjá orkugildi metans
 Íslenskt metan er 125-130 oktan eldsneyti og með allt að 98% hreinleika.

Verð á íslensku metani hækkaði um um 6 kr/Nm3  1. september 2011 - hækkun í smásölu var vegna hækkunar á skilaverði til SORPU- sjá lið-5 í fundargerð SORPU

Metan eldsneyti er selt í einingunni normalrúmmetri , Nm3.  Íslenska matanið er í allra hæsta gæðaflokki með allt að 98% hreinleika. Orkuinnihald í einni einingu (NM3) af íslensku metani er heldur meira en sem nemur orkuinnihaldi í einum lítra af 95-oktana bensíni. Á nýjum metan/bensínbíl getur þú ekið, hið minsta,  jafn langt á einni einingu af metani (Nm3) og hægt er að aka sama bíl á einum lítra af 95-oktana bensini. Tölur frá framleiðendum gefa þó vísbendingu um að nýr metan/bensínbíll komist  4-6% lengri akstursvegalengd á einni einingu af metani (Nm3) en  95-oktana bensín getur skilað. 

Sjá efnasamsetningu á íslensku metani við síðustu mælingu, CH4 = 97,525 % - hér

Nýir metan/bensínbílar nota heldur færri einingar af metan eldsneyti á akstri en sem nemur lítrum af 95-oktana bensíni ef valið er að aka á bensíni.  Ávinningurinn af því að aka á metan eldsneyti í stað bensíns er því meiri en sem nemur verðmuni á einingaverði eldsneytanna  - oft 4-6% meiri sparnaður í eldsneytiskostnaði en sem nemur verðmismuni á dæluverði.

Fyrstir hringinn

  

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, ók síðasta spölinn í sögulegri hringferð dagana 24-26 júlí 2009, þegar Ómar Ragnarsson, fréttamaður, og Einar Vilhjálmsson, markaðsstjóri Metan hf., urðu  fyrstir til að fara hringveginn á ökutæki knúnu íslensku eldnseyti - íslensku metani.  Við komu á áfangastað skoðaði iðnaðarráðherra uppfærslu á bensínvél bílsins í metan/bensínvél, en nemenda á bílgreinasviði í Borgarholtsskóla uppfærðu bílinn sem þeir félagarnir óku á. Eftir uppfærslu á  bílum með þessum hætti skapast val um að aka á metan eldsneyti einu og sér þótt val um að aka á bensíni sé eftir sem áður til staðar.

Giska sáttur við  verðið

    

Össur Skarphéðinsson, núverandi utanríkisráðherra og fyrrverandi iðnaðarráðherra, er giska glaður á myndinni með verðið á íslenska metaninu. Og ekki þótti aksturinn á Mercedes Benz minna spennandi. Hermann Guðmundsson, forstjóri N1,  stendur honum við hlið og leiðir Össur í sannleikann um öryggi metans og þann mikla og margþætta ávinning sem aukin notkun á íslensku metaneldsneyti hefur fyrir land og þjóð.