Spurt og Svarað
Eru nýir metan/bensínbílar ódýrari en bensínbílar?
Já, metan/bensínbílar eru gjarnan ódýrari en bensínbílar af sömu gerð og tegund. Ástæða er sú að stjórnvöld hafa fellt niður vörugjald af slíkum bílum af umhverfisástæðum og efnahagslegs ávinnings af notkun íslensks og endurnyjanlegs eldsneytis. Á Íslandi eru í boði metan/bensínbílar (með tveimur eldsneytisgeymum) sem eru ódýrari en bílar sölu gerðar sem hafa einungi bensíngeymi. Og það sem meira er, ferðafrelsi á metan/bensínbíl er jafnvel meira en á bensínbíl sömu gerðar. Á metan/bensínbíl er hægt að aka lengra á eldsneytisbirgðum. Ef farið er á metan/bensínbíl út á land er alltaf hægt að aka á bensíni ef metan er ekki fáanlegt.
Ýmsar gerðir fólksbíla eru í boði með metangeymi sem skilað getur 300-600km akstri á einni fyllingu og hafa að auki bensíngeymi sem dugar annað eins. Metan/bensínbíla eru til í heiminum af öllum gerðum og stærðum. Verð á metan/bensínbíl fer vissulega eftir þeim lúxus sem sóst er eftir. Ýmsar gerðir minni metan/bensínbíla gætu verði fáanlegar hér á landi á næstu misserum sem kosta undir eða um tvær milljónir króna, t.d. ýmsar gerðir af FIAT. Á íslandi hefur Hekla selt mest af metan/bensínbílum af ýmsum gerðum frá Volkswagen, og Askja frá Mercedes Benz. Önnu bílaumboð hér á landi horfa til þess að mæta aukinni eftirspurn í landinu og bjóða ýmsar gerðir af metan/bensínbílum í framtíðinni .
Einnig má geta þess að með nýjum lögum sem tóku gildi 1.janúar 2011 heimila stjórnvöld að nýir innfluttir bensínbílar verði uppfærðir hér á landi í metan/bensínbíla fyrir nýskráningu og njóta þeir þá eftirgjafar á vörugjaldi allt að 1.250.000 kr. Þannig gætu metan/bensínbílar af öllum gerðum verið í boði hér á landi á næstu misserum. Þar sem uppfærslukostnaður er algengt 400-500 þúsund kr gætu ýmsar gerðir nýrra bensínbíla lækkað í verði.








