English   |   Forsíða   |   Veftré   |   Hafa samband

Spurt og Svarað

Hvers vegna uppfæra margir bensínbíl sinn í metan/bensínbíl ?

Flestir láta uppfæra bílana sína til að lækka eldsneytiskostnað sinn. Metan eldsneyti er mun ódýrara en bensín og algengt að eldsneytiskostnaður lækki á bilinu 40-50% við að aka á metani í stað bensíns án þess að ökumaðurinn finni mun á þægindum í akstri. Margir horfa einnig til þess að íslenskt metan er umhverfisvænt eldsneyti í hæsta hæðaflokki og að notkun á íslensku metani sparar gjaldeyrir þjóðarinnar og skapar störf í landinu.

Eftir uppfærslu á bensínbíl hefur bíllinn tvo eldsneytisgeyma, bensíngeyminn eins og áður en einnig metangeymi. Ferðafrelsi á uppfærðum bensínbíl er því aukið ef eitthvað er, enda hægt að aka mun lengra á samanlögðum eldsneytisbirgðum eftir uppfærslu. Sem dæmi um ferðafrelsi er hægt að flytja metan/bensínbíl með Norrænu til Evrópu og ferðast um á umhverfisvænu og ódýru metan eldsneyti.

Eftirspurn eftir notuðum metan/bensínbílum hefur aukist á höfuðborgarsvæðinu og því horfa margir einnig til þess að auðveldara muni reynast að selja bíl í framtíðinni ef hann hefur búnað til að nýta metan eldsneyti í akstri. Þar fyrir utan geta þeir sem uppfæra bíla síns flutt dýrasta búnaðinn yfir í næsta bíl eða selt búnaðinn sérstaklega.

Sjá: Breyting á bílum

 

Til baka