Spurt og Svarað
Hvers vegna eykst notkun á metaneldsneyti svona hratt ?
Ástæðan fyrir aukinni notkun á metan ökutækjaeldsneyti á Íslandi er sú sama og um allan heim, samgöngutækjum fjölgar hratt sem nýtt geta á metan eldsneyti í akstri. Flestir bílaframleiðendur heims framleiða metan/bensínbíla með tveimur eldsneytisgeymum, metan-og bensíngeymi. Vélar slíkra bíla eru að upplagi eins og bensínvélar en þær geta bæði gengið fyrir metani og bensíni einu og sér.Ökutækjum fjölgar einnig sem ganga eingöngu fyrir metaneldsneyti og í takt við bætt dreifikerfi fyrir metan
Einnig er hægt að uppfæra alla eldri bensínbíla í metan/bensínbíla þannig að þeir geti líka gengið fyrir metani. Um þessar mundir er fjölgunin metan/bensínbíla hröðust vegna uppfærslu (breytinga) á bílum. Uppfærslan tekur 1-3 daga á verkstæði og eftir það á ökumaðurinn val um að nota metan eða bensín í akstri. Með akstri á metan eldsneyti í stað bensíns eða dísilolíu skapast mikill og margþættur ávinningur sem neytendur horfa til í stórauknum mæli. Bíleigandinn sparar sér eldsneytiskostnað algengt um 40-50% og skapar samhliða mesta hlutfallslega umhverfislega ávinning sem völ er á með rekstri bílsins.
Auk þess sparast gjaldeyri þjóðarinnar með notkun á innlendu eldsneyti og framleiðslan eflir atvinnu-og nýsköpun í landinu og leggur grunn að auknu orkuöryggi landsins. Það er að renna upp fyrir íslensku þjóðinni að stóraukin metanvæðing í samgöngum á Íslandi er raunhæfur og hagfelldur valkostur.
Sjá Metanblaðið 240610 - Viðtal við Ingu Jónu Þórðardóttur, fyrrum stjórnarformann Metan hf








