English   |   Forsíða   |   Veftré   |   Hafa samband

Metan/bensín sendibílar

Ökutæki af öllum gerðum eru til í dag sem nýtt geta bæði metan eldsneyti og bensín á akstri. Flestir bílaframleiðendur heims framleiða bíla í dag sem með svonefndri tvíbrennivél, sem er að öllu upplagi eins og bensínvélin, en getur bæði gengið fyrir metan og bensíni - metan/bensínvél. Bílarnir hafa tvo eldsneytisgeyma og tölvubúnaður stillir sjálfkrafa yfir á bensíngeyminn ef metanbirgðir klárast. Slíkir bílar henta því mjög vel við aðstæður þar sem dreifikerfi fyrir metan er að byggjast upp eins og á Íslandi . Ökumenn finna engan mun á akstri hvort heldur ekið er á metani eða bensíni. Fjölgun metan/bensínbíla í heiminum hefur verið stöðug á þessari öld og nemur um 3 milljónum nýrra bíla á ári um þessar mundir.

Fjöldi bílaframleiðenda í heimium framleiða metan/bensínbíla í þessum flokki . Á Íslandi hefur Hekla og Askja boðið upp á ýmsar gerði um nokkurra ára skeið og reynsaln verið mjög góð og ánægjuleg fyrir alla - rekstrarlega, umhverfislega og þjóðhagslega mjög hagfelldir bílar.


 
Sjá dæmi um bíla til sölu á Íslandi í dag:

VW Caddy EcoFuel 

VW Transtorter EcoFuel 

Mercedes Benz-Sprinter

FIAT Ducado - væntanlegur frá Sögu

FIAT Dobló -væntanlegur frá Sögu

IVECO  - mikip úrvali metanbíla - sjá dæmi um fréttir   hér og  hér

Sjá dæmi um metan / bensínbíla í boði viða um heim - bíla með tvo eldsneytistanka. Athugið að orðið CNG stendur fyrir ,,Compressed Natural Gas"  eða  jarðagas. Jarðgas inniheldur metan og því ganga allir slíkir bílar fyrir íslensku metani án nokkurra breytinga á vél eða öðrum búnaði. 
Sjá ökutækjalista hér
Síða í vinnslu.