English   |   Forsíða   |   Veftré   |   Hafa samband

Strætó-ítarefni

METAN-STRÆTÓ - Fimm ára reynsla af notkun tveggja metanvagna.

SKILGREININGAR:
Orkukerfi ökutækja = efni og búnaður sem tryggir þá orku sem akstur grundvallast á.
Nútíma-metan = metan eldsneyti sem unnið er úr lífrænu efni á yfirborði jarðar í dag.
Fyrritíma-metan = metan eldsneyti sem myndast úr lífrænu efni sem var á yfirborði jarðar í fortíðinni, jarðgas.
Íslenskt metan = nútíma-metan, unnið úr lífrænu efni á yfirborði jarðar í dag. 
Fyrritíma CO2 = koldíoxið sem losað er út í lofthjúp jarðar með bruna jarðefnaeldsneytis ( olía, kol)
Nútíma-CO2 = koldíoxíð sem losnar út í lofthjúp jarðar með niðurbroti á lífrænu efni í náttúrunni eða með bruna á nútíma-metani í bílhreyfli.

Eins og gjarna vill verða þegar ný tæki og búnaður er innleiddur hefur ýmislegt komið í ljós við skoðun á þjónustu og rekstri vagnanna sem betur hefur mátt fara og hefur verið lagfært á þeim fimm árum sem þeir hafa verið í notkun. Visst óhagræði hefur skapast af því að hafa bara tvo vagna af tiltekinni gerð í rekstri STRÆTÓ bs. Þar fyrir utan hefur STRÆTÓ bs. þurft að laga sig að vissu óhagræði vegna metanafgreiðslunnar í gegnum tíðina. Með opnun á nýrri afgreiðslustöð N1 á Bíldshöfða og notkun á fyrsta flokks afgreiðslubúnaði hafa stórstígar framfarir átt sér stað og helstu áskorunum verið mætt. Best væri þó að hafa metanafgreiðslu á rekstrarsvæði STRÆTÓ bs á Hesthálsi. Á þann hátt ná almenningssamgöngur að skapa umhverfislegan og rekstrarlegan ávinning eins og hann getur orðið mestur. Til að svo megi verða þarf metanvögnunum að fjölga.

Mikil þróun hefur átt sér stað á metanvögnum frá því að metanvagnarnir tveir, frá SCANIA, komu til landsins fyrir fimm árum. Notkun á metan strætisvögnum og skólabílum eykst hratt um allan heim. Umhverfislegur ávinningur ræður mestu um þá hröðu þróun en einnig hefur aukið umferðaröryggi (sjá hér) og rekstrarlegur ávinningur stutt eldsneytisskiptin frá notkun díselolíu yfir í metan. Til mikils er að vinna ef STRÆTÓ bs. verður gert kleift að fjölga metanvögnum. Kostnaðaráætlun metanafgreiðslustöðvar á Hesthálsi hefur verið unnin í samstarfi við innlenda og erlenda aðila.

Ávinningur markvissrar metanvæðingar hjá STRÆTÓ bs snýr að rekstrinum en ekki síður að umhverfinu og gjaldeyrisbúskap þjóðarinnar. Hér er því gott dæmi þar sem samtakamáttur sveitarfélaga og hins opinbera getur skapað mikinn og margþættan ávinning á stuttum tíma.

Samanburpur á notkun dísel-strætó og metan-strætó í 12 ár - umvherfi, rekstur og þjóðarbú:

•  Umhverfið: Einn metanstrætó í stað dísilstrætó sparar,á þjónustutíma sínum, aukningu á fyrritíma-koldíoxíði (CO2) í lofthjúpi jarðar sem nemur um 1,213 miljónum kg af  CO2. 
•  Nettó gjaldeyrissparnaður vegna notkunar á metani er að nafnvirði um 21,5 milljónir kr á þjónustutíma eins metan-strætó í stað dísil-strætó.
•  Nettó gjaldeyrissparnaður að núvirði (5.5% vextir, 12 ár) er um 10 milljónir ( notkun hvers strætó minnkar með árunum)
•  Sparnaður í eldsneytiskostnaði  STRÆTÓ bs er háður þróun eldsneytisverðs á metani og dísilolíu en miðað við stöðuna í dag (júlí 2010) er um sparnað að ræða sem skiptir milljónum á núvirði þótt miðað sé við að nýir metanvagnar noti 58 Nm3/100km af metani og dísilvagninn 46.6L/100km af dísilolíu.

Metanvæðingin skapar mikinn og margþættan ávinning að auki:
Atvinnu-og nýsköðun í landinu.  
Fjölbreyttara orkuöryggi í landinu - endurnýjanlegt og  sjálfbært.  
Orkukerfi sem stutt er miklu framboði ökutækja og véla og samkeppni mikil.
Metan eldsneyti má framleiða víða um land - eignarhald framleiðslu  valkvætt. 
Ofangreinda hagsmuni ber okkur að meta mikils við leiðarval til orku-kerfis-skipti í samgöngur þjóðarinnar á landi sem legi. Með metanvæðingu í almenningssamgöngum þjóðarinnar stígur þjóðin heillaspor á grundum gatna.

Tölurnar hér að ofan um eldsneytisnotkun eru fengnar frá STRÆTÓ bs. Nýting metanbíla á eldsneyti hefur batnað til muna á síðustu 5 árum, eins og tilfellið er með flestar bílvélar. Og því ljóst að ávinningur STRÆTÓ bs. gæti orðið mun meiri en að ofan greinir. Mikill árangur hefur náðst undanfarin ár í þróun metanvéla þar sem vélarnar eru nú hannaðar frá upphafi sem metanvélar en voru áður breyttar díselvélar. Nýtingarhlutfall metan-strætóvagnanna tveggja sem verið hafa í notkun síaðstliðin fimm ár hjá STRÆTÓ bs er enginn mælikvarði á nýtingarhlutfallið í dag, sérstaklega samanborið við nýja metanvagna. Þótt ending á vélum metanvagna sé meiri en dísilvagna að sögn framleiðenda, er að ofan gert ráð fyrir að nýtingahlutfall vagna sé hið sama. Að auki er endursöluverð notaðra metan-og dísilvagna lagt að jöfnu, þótt ljóst þykir að eftirspurn eftir notuðum metanvögnum muni verða mikil á komandi misserum og árum.

Til skýringar á tölum og niðurstöðum að ofan:
Akstur vagns (full nýting): 1.000.000 km á 12 ára þjónustutíma ( notkun minnkar með árunum)
Eldsneytisnotkun (dísilolía): 46,6L/100km eða um 466.667 L/þjónustutíma
Bruni á dísilolíu eykur magn af fyrritíma-CO2 í lofthjúpi jarðar sem nemur um 2,66kg/L.
Heildaraukning á CO2 út í lofthjúp jarðar vegna eins dísil-strætó er því: : 2,66 kg/L * 466.667 L = 1213 tonn kg. ( 1.213.000 kg)
Með notkun á íslensku metani sparast þessi aukning á CO2 út í lofthjúp jarðar
Gefum okkur að dæluverð á dísilolíu verði 200kr/L að jafnaði næstu 12 árin (hófstillt forsenda)
Gefum okkur einnig hófstillt hlutfall gjaldeyriskostnaðar í dæluverði dísilolíu um 30%
Gjaldeyriskostnaður vegna kaupa á dísilolíu á þjónustutíma eins dísil-strætó er því;
30%* 200kr/L * 466.667 L = 28,5 milljónir kr í gjaldeyri að nafnvirði.

Undangengin ár hafa metanvagnar kostað 5-7 milljónum meira í gjaldeyri en dísilvagnar. Gerum ráð fyrir að svo verði áfram og lækkum því ávinninginn að nafnverðið niður í 21,5 milljóna kr. Ef við núvirðum gjaldeyrissparnaðinn vegna eldsneytiskaupa yfir 12 ára tímabil ( mismunandi notkun eftir árum) með gömlu ICESAFE-vöxtunum (5,5%) fæst nettó gjaldeyrissparnaður upp á um 10 milljónir kr að teknu tilliti til kostnaðarmismunar á vögnunum.  (ATH, þar sem gjaldeyriskostnaður á eldsneyti er miðaður  við hlutfall af dæluverði, í þessari framsetningu, er stætt á að tala um gjaldeyriskostnað í krónum án þess að fást frekar um gengi gjaldmiðla á hverjum tíma.)

Bruni á íslensku metani eykur ekki ( 0,0 kg ) magn af  koldíoxíði (CO2) lofthjúpi jarðar ( ekkert fyrritíma-koldílxíð).
Bruni á íslensku metani myndar koldíoxíð (CO2) en þetta koldíoxíða á sér ekki uppruna í jarðefnaeldsneyti og reiknast  því ekki sem  viðbót á koldíoxíði (CO2) í lofthjúpi jarðar (nútíma-CO2) - enginn faglegur ágreiningur er um þessa framsetningu.



Íslenskt metan = nútíma-metan, unnið úr lífrænu efni á yfirborði jarðar í dag. Við bruna á íslensku metani myndast koldíoxíð (CO2) sem á uppruna sinn að rekja til lífræns efnis á yfirborði jarðar í dag ( nútíma-CO2). Og því getum við sagt að með útblæstri frá metanvél sé koldíoxíði skilað til baka til frlífríkisins sem þarf á því að halda - allur gróður þarf að fá koldíoxíð (CO2) úr andrúmsloftinu til að vaxa og dafna (ljóstillífun).

Við eigum hagfelldan valkost til að viðhafa samfélagslega ábyrgar almenningssamgöngur í landinu á næstu árum- samtakamáttur sveitarfélaga og ríkisins er allt sem þarf - hlúum að STRÆTÓ bs.