Metan strætó
STRÆTÓ bs. er í eigu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu; Álftanes, Garðabær, Hafnarfjörð, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes. Fyrirtækið hefur um fimm ára skeið verið með tvö metanvagna í daglegum rekstri á höfuðborgarsvæðinu. Umhverfislegur ávinningur og gjaldeyrissparnaður af notkun vagnanna hefur verið mikill á þessum tíma enda nemur eldsneytisnotkun á einum dísil-strætó um 46,6L/100km. Ætla má að jafnaði að hlutfall gjaldeyrissparnaðar í dæluverði á dísilolíu nemi um 30%. Með hverjum spöruðum dísillítra sem ekki er brenndur í strætóvélinni sparast aukning á koldíoxíði (CO2) út í lofthjúp jarðar um 100%, eða sem nemur um 2,66kg/L (fyrritíma-CO2). Hvað varðar áhrif á nærumhverfi þá minnkar metan-strætó losun á sóti um 80% miðað við losun frá dísil-strætó. STRÆTÓ bs. hefur því skapað mikinn ávinning, fyrir umhverfið og gjaldeyrisbúskap þjóðarinnar, með rekstri vagnanna síðastliðinn fimm ár - það ber að þakka.
![]()
Á Metandeginum 24.júní 2010 birtist viðtal við Reyni Jónsson, framkvæmdastjóra Strætó bs. í Metanblaðinu sem út kom sama dag: ,,Við viljum leggja okkar af mörkum í notkun vistvænna, endurnýjanlegra orkugjafa. Við höfum verið að skoða leiðir til að stuðla að endurnýjun vagnaflotans í þessa átt og erum að marka stefnu í umhverfismálum. Strætó bs. hefur átt í góðu samstarfi við Metan hf. og horfir m.a. til frekari nýtingar á metangasi,“
„Ítarefni um ávinning af notkun metan strætisvagna“








