English   |   Forsíða   |   Veftré   |   Hafa samband

Metan sorpbílar

Metan soprhirðubílar flytja úrgang frá heimilum í Reykjavík og víðar á höfuðborgarsvæðinu.

Þórólfur V. Þórólfsson hefur starfað við sorphirðu í Reykjavík frá árinu 1957 og fagnar sérstaklega komu metanbílanna. Þórólfur segir að metan sorphirðubílarnir séu þeir langbestu sem hann hafi unnið með og vinnuaðstaðan allt önnur í kringum þá. ,, Andrúmsloftið umhverfis bílana er auðvita allt annað og svo eru þeir einnig mun hljóðlátari en dísilbílarnir ".

   

Þórólfur segir að það sé mjög þægilegt að vinna á bílunum;  ,, þeir eru mjög þægilegir í akstri og ekkert út á þá að setja ". Hjá N1 á Bíldshöfða tekur það 5-8 mínútur að fylla bílana að sögn Þórólfs og aðstaðan í dag öll hins besta . Hjá Reykjavíkurborg annast 16 metan sorphirðubílar þjónustu við borgarbúa í dag með miklum og margþættum ávinningi – umhverfislegur, rekstrarlegur og þjóðhagslegur ávinningur.