English   |   Forsíða   |   Veftré   |   Hafa samband

Metanbílar í boði

Ökutæki af öllum gerðum eru til í dag sem nýtt geta bæði metaneldsneyti og bensín í akstri. Flestir bílaframleiðendur heims framleiða bíla í dag með svonefndri tvíbrennivél, sem er að öllu upplagi eins og bensínvélin, en getur bæði gengið fyrir metan og bensíni - metan/bensínvél. Bílarnir hafa tvo eldsneytisgeyma og tölvubúnaður stillir sjálfkrafa yfir á bensíngeyminn ef metanbirgðir klárast. Slíkir bílar henta því mjög vel við aðstæður þar sem dreifikerfi fyrir metan er að byggjast upp eins og á Íslandi . Ökumenn finna engan mun í akstri hvort heldur ekið er á metani eða bensíni. Fjölgun metan/bensínbíla í heiminum hefur verið mikil á þessari öld og nemur um þessar mundir 2,5-3 milljónum nýrra ökutækja á ári.

Vinsældir metan/bensínbíla verða fyrirsjáanlega miklar um allan heim á þessari öld enda skapa orkukerfisskipti, frá notkun bensíns og dísilolíu, yfir í metaneldsneyti mikinn og margþættan ávinning. Með notkun á metan/bensínbíl skerðist ferðafrelsi almennings ekki þar sem ávallt er unnt að aka á bensíni ef á þarf að halda.  
Mikið framboð er af metaneldsneyti í heiminum í formi jarðgass (fyrritíma-metan) og sú staðreynd að þjóðir víða um heim, eins og á Íslandi, búa yfir þekkingu og getu til að framleiða metan eldsneyti úr lífrænu efni á yfirborði jarðar (nútíma-metan) mun fyrirsjáanlega leiða til stóraukinnar notkunar á metan ökutækjaeldsneyti á þessari öld. Aukna eftirspurn eftir metaneldsneyti má rekja m.a. til ,ess að að er öruggt, skaðlaust við innöndun og snertingu,  ódýrara og umhverfisvænt í samanburði við aðra valkosti til vélknúinna samgangna. Þá hefur áhersla á orkuöryggi þjóða aukist mikið á þessari öld og áhugi stjórnvalda, víða um heim, fyrir aukinnin metanvæðingu í samgöngum aukis samhliða . Áhersla hefur stóraukist á mikilvægi þess að þjóðir geti tryggt sem best ferðafrelsi sitt og samgönguöryggi með endurnýjanlegu og sjálfbæru orkukerfi . Á akstri metanbíls finnst enginn mun á því hvort ekið er á nútíma-metaneldsneyti (íslenskt metan) eða fyrritíma-metaneldsneyti (jarðgas) enda er orkusameindin í metaneldsneyti sú sama, CH4, í báðum tillfellum.
Skilgreiningar.
Orkukerfi ökutækja = efni og búnaður sem tryggir þá orku sem akstur grundvallast á.  
Nútíma-metan = metan eldsneyti sem unnið er úr lífrænu efni á yfirborði jarðar í dag , CH4
Fyrritíma-metan = metan eldsneyti sem unnið er úr lífrænu efni sem var á yfirborði jarðar í fortíðinni  (jarðgas), CH4
Í apríl 2011 vor hátt á fimmta hundruð ökutæki á Íslandi, af ýmsum gerðum og stærðum, sem gengu fyrir metaneldsneyti  - fólksbílar, sendibílar, pallbílar,  jeppar, sorphirðubílar, krókbíll, vörubílar og strætó. Í dag fjölgar bílunum hratt, sem nýtt geta metaneldsneyti í akstri, með uppfærslu (breytingu) á hefðbundnum bensínbílum í metan/bensínbíla.  Jafnframt er í undirbúningi að bjóða upp á uppfærslu á dísilvélum í metan/dísilvélar.  Viðbúið er að bifreiðaumboðin muni einnig í auknum mæli bjóða upp á nýja metan/bensínbíla á næstu misserum og árum enda eykst framboð í heiminum ár frá ári af samgöngutækjum  sem nýtt geta íslenskt metan til að knýja för og ávinningur okkar Íslendinga mikill af notkun þeirra í stað annarra valkosta -  rekstrarlegur, umhverfislegur og þjóðhagslegur ávinningur.
Síðastliðna áratugi  hefur viðspyrnan gegn framgangi metanvæðingarinnar í heiminum  verið mikil og markviss og tekið á sig ýmsar myndir enda um mikla viðskiptahagsmuni að ræða samfara orkukerfisskiptum í samgöngum.  Nú hefur ,,loftið þó náð að holað steininn‘‘ og framtíð metanvæðingar í heiminum er björt - ekki hvað síst á Íslandi þar sem þekking, reynsla, og auðlindir eru til staðar. Metan eldsneyti hefur verið framleitt á Íslandi frá árinu 2000 og svo komið að veldisaukning hefur átt sér stað í eftirspurn eftir metan ökutækjaeldsneyti. Fyrirsjáamnlegt þykir að allt það metaneldsneyti sem framleitt verður í landinu á komandi árum verði nýtt í samgöngum þjóðarinnar og við blasir það ,,lúxusverkefni" að skapa samtakamátt um stóraukna framleiðslu í landinu með samtakamætti ríkis, sveitarfélaga og atvinnulífs.   Metanvæðing í samgögnum á Íslandi er á grænni grein á þessari öld - áhættan getur vart verið minni.

Fjölgun ökutækja í heiminum - sjá hér
Fjölgun ökutækja í heiminum - sjá einnig hér