Landsamgöngur
Samgöngutækjum fjölgar hratt í heiminum sem nýtt geta metan eldsneyti:
Markaðsrannsókna-og ráðgjafafyrirtækið Pike Research hefur kynnt ýtarlega skýrslu um markaðshorfur fyrir umhverfisvæna tækniþróun. Þar er að finna niðurstöður um
fyrirsjáanlega þróun metanvæðingar í heiminum sem vísar til mikillar aukningar á notkun ökutækja sem ganga fyrir metan eldsneytis. Fram kemur að árið 2008 voru um 9,7milljónir ökutækja í heiminum sem nýttu metan eldsneyti. Því er spáð að fjöldi ökutækja verði yfir 17 milljónir á árinu 2015og jafnframt að sala nýrra ökutækja sem nýta metan eldsneyti fara þá í fyrsta skipti yfir 3 milljónir á ári.
Samkvæmt skýrslunni mun hraði orkuskipta verða mismunandi eftir löndum og uppbygging dreifikerfis ráða mestu um hvernig til tekst. Að sögn Dave Hurst, markaðssérfræðings, hafa stjórnvöld, fyrirtæki og einstaklingar í auknum mæli gert sér grein fyrir hinum mikla ávinningi metanvæðingarinnar og fyrirsjáanleg mikil aukning á eftirspurn eftir ökutækjum sem nýtt geta metan eldsneyti. Dave áréttar að á þeim svæðum sem metanvæðingin hefur gengið hraðast fyrir sig hefur verð á metan eldsneyti verið hagfellt, dreifikerfið í markvissum vexti og stjórnvöld skapað fjárhagslegan hvata til kaupa á ökutækjum sem nýtt geta metan eldsneyti. Og jafnframt skapað hvata til að hraða uppbyggingar á dreifikerfi. Sala á ökutækjum sem nýtt geta meta var hvað mest í Pakistan, Argentínu, Brasilíu, Íran og Indlandi á árinu 2009, að sögn Dave, en næstu 5 árin gerir hann ráð fyrir að salan verði blómlegust í Canada, Indlandi og Bandaríkjunum.
Sjá frétt á ensku- hér
Sjá einnig kyningu á stöðu og spá um þróun metanvæðingar í heiminum -hér:
Yfir 12 milljónir ökutækja í heiminum nýttu metan eldsneyti í akstri í júní 2010 - sjá frétt








