Iðnaður og fleira
Það segir eflaust meira en margt annað um nýtingarmöguleikana á metan eldsneyti í iðnaði og stóriðju að á útmánuðum 2010 bárust fréttir af því að eitt stærast álver í heimi yrði starfrækt í Katar þar sem metaneldsneyti verður helsti orkugjafi verksmiðjunnar. Mikill umhverfislegur ávinningur skapast hlutfallslega við þennan ráðahag enda býr heimsbyggðin ekki svo vel að geta aflað orku með virkjun fallvatna eða jarðvarma eins og við Íslendingar. Verksmiðjan í Kata stens því ekki vel hlutfallslegan samanburð við íslensk álver hvað varðar hlýnunaráhrif í lofthjúpi jarðar vegna starfseminnar. Hins vegar í samanburði við þá valkosti sem eru fyrir hendi og viðhafðir eru víða um heim, brennsla á kolum, er hér um mikinn hlutfallslegan ávinning að ræða í Katar svo fremi sem annað álver sem nýtir kol sem hráorkugjafa minnkar starfsemi sína á móti eða hættir starfsemi sinni.
Metan notað í iðnaðinan á Íslandi : Ýmis verkefni eru á borði Metan hf í dag þar sem verið er að skoða hagfelldustu leiðir til að mæta óskum fyrirtækja um nýtingu á íslensku metani í stað jarðefnaeldsneytis og frétta að vænta á komandi misserum og árum. Áhugi fyrirtækja hefur aukist mikið fyrir nýting á íslensku metani með einu eða öðrum hætti enda um mikinn og margþættan ávinning að ræða umfram rekstrarlegan ávinning sem fyrirtækin láta sig einnig varða í auknum mæli - umhverfislegur og þjóðhafslegur ávinningur.
Múli Bílréttingar og sprautun hf. f. hefur notað metan í stað kolasíu við að þurka nýmáluð ökutæki frá árinu 2004 og hefur það verkefni gengið vel. Á vinnustaðnum er einungis notast við innlenda orku þar sem íslenska metanið leysir af hólmi innflutt eldsneyti sem annars er notað við sambærileg störf.
Árið 2002 hófu Borgarplast hf. og Metan hf. tilraun með notkun metans í iðnaði. Verkefnið var styrkt af Orkusjóði og „Átaki til atvinnusköpunar“. Tilraunin fólst í að hreinsa hauggas, flytja það úr Álfsnesi í verksmiðju Borgarplasts hf. á Seltjarnarnesi og nota í stað olíu á einn ofn verksmiðjunnar. Tilgangurinn með verkefninu var margþættur, m.a. að kanna áhrif á vinnuumhverfi starfsmanna, hugsanleg áhrif á framleiðsluvörur og hvort grundvöllur væri fyrir lagningu leiðslu úr Álfsnesi út á Seltjarnarnes. Þeim sem stóðu að þessu verkefni er ekki kunnugt um að metan, sem upprunið er á sorphaugum, hafi verið reynt til slíkra nota áður. Niðurstöðum verkefnisins voru mjög jákvæðar og voru kynntar fyrir Valgerði Sverrisdóttur iðnaðarráðherra, þann 11. júlí 2002. Þær sýndu fram á það að metangas er góður kostur í iðnaði. Kemur það sérstaklega fram í bættu umhverfi starfsmanna þar sem metan kemur í stað olíu sem eldsneyti. Á heimasíði Borgarplast var (er) að finna eftirfarandi skilaboð í tengslum við verkefnið ,, Fyrst fyrirtækja í heiminum að nota endurunnið hauggas (metan) í stað olíu sem orkugjafa á framleiðsluvélar og notað á framleiðsluvélanar í verksmiðjunni á Seltjarnarnesi. Hauggasið er unnið úr sorphaugum í Álfsnesi af Metan hf."








