Notkun á metan eldsneyti
Metan eldsneyti nýtur síaukinna vinsælda um allan heim og er notað á allar gerðir ökutækja hvort heldur um er að ræða fólksbíla,lögreglubíla, sjúkrabíla, sendibíla, sorphirðubíl, strætó eða önnur stærri samgöngutæki. Metan er einnig notað sem eldsneyti á báta, ferjur og skip og á ýmsar vélar í iðnaði og stóriðju samanber frétt í mars 2010 um álver í Katar. Í landsamgöngum er metan mest afgreitt sem lofttegund fyrir fólksbíla en metan í vökvaformi er einnig í mikilli sókn sem eldsneyti fyrir stærri ökutæki , vinnuvélar og skip. Einnig eru flugför farin að nýtta metan eldsneyti svo segja má, að vélknúin samgöngutæki af öllum gerðum nýti eldsneytið í stórauknum mæli um allan heim enda er metanvæðingunni ætlað mikilvægt hlutverk við umhverfisvæn orkukerfisskipti vélknúinna samgöngtækja í heiminum á þessari öld.
Gera má greinamun á metan ökutækjaeldsneyti með tilliti til uppruna þess hráefnis sem eldsneytið er framleitt úr. Gjarnan er rætt um nútíma-metan ,annars vegar, og fyrritíma-metan hins vegar. Þegar rætt er um nútíma-metan er verið að vísa til þess að eldsneytið er unnið úr lífrænu efni á yfirborði jarðar í dag. Með heitinu fyrritíma-metan er vísað til þess að metanið kemur frá jarðgasi sem myndast í jarðskorpunni úr lífrænu efni sem var á yfirborði jarðar í fortíðinni. Vélar samgöngutækja eða í iðnaði ganga þó jafnt fyrir nútíma-CH4 og fyrritíma-CH4, enda er orkuinnihald metansameindiarinnar, CH4, það sama óháð uppruna hennar.
Upplýsingagjöf um upruna eldsneytisins lýtur fyrst og fremst að umhverfislegum markmiðum um að draga úr hlýnunaráhrifum af mannavöldum frá samgöngum. Nútíma-metan er mun umhverfismildara eytisins a en fyrritíma-metan og er gjarnan nefnt ,,gull allra eldsneyta". Umhverfismildi fyrritíma-metans er þó meiri en flestra annarra valkosta til sambærilegra orkukerfisskipta í samgöngum og því er eykst notkun á því mikið um allan heim enda mikið af því til í jarðskorpunni.
Á erlendum málum er nútíma-metan nefnt mismunandi nöfnum. - biogas, CBG ( compressed biogas) fyrir nútíma-metan metan eldsneyti á gasformi og LBG (liquefied biogas) fyrir nútíma-metan eldsneyti á vökvaformi. Þar sem notkun á fyrritíma-metani er mun útbreiddari í heiminum í dag er mikið fjallað um metan eldaneyti það á veraldarvefnum undir enska heitinu Natural Gas, CNG ( compressed natural gas) og LNG ( liquefide natural gas) sem er fyrri-tíma metan eldsneyti á vökvaformi.
Metan ökutækjaeldsneyti er víða um 40% ódýrar í heiminum en bensín og dísilolía en dæmi eru þó um mun meiri verðmun eins og hér á landi. Mikið magn er til af fyrri-tíma metani í heiminum og mikil aukning á framleiðslu á nútíma-metani einnig - sérstaklega meðal þjóða sem búa yfir reynslu og aðftöðu til að gera það með hagfelldum hætti eins og við Íslendingar. Framboðsskortur á metan ökutækjaeldsneyti er ekki vandamál á Íslandi á þessari öld, ef því er að skipta, enda búum við það vel að geta framleitt metan úr öllu lífrænu efni sem við kjósum að framleiða metan úr og gætum ræktað lífmassa til metanframleiðslu sem annar gæti eftirspurn alls bílaflota landsmanna. Þar fyrir utan standa líkindi til að fyrritíma-metan sé að finna í vinnanlegu magni á Drekasvæðinu í landgrunni Íslands. Tækifæri til stóraukinnar metanvæðingar í samgöngum á Íslandi er í hendi þjóðarinnar.








