English   |   Forsíða   |   Veftré   |   Hafa samband

Öryggi metans

Víða erlendis knýr metan eldsneyti sjúkrabíla, lögreglubíla í áhættuakstri, slökkvibíla og skólabíla, svo fátt eitt sé nefnt. Sú staðreynd segir ef til vill meira en margt annað um öryggi metan eldsneytis í samanburði við bensín og dísilolíu. 

Ástæður þess að metan eldsneyti er skilgreint sem öruggara eldsneyti en bensín og dísilolía eru helstar þessar:
  • Metan eldsneyti er skaðlaus loftegund við innöndun og snertingu en loftegundir frá bensíni og dísilolíu eru mjög hættulegar og geta valdið dauða.
  • Metan eldsneyti hefur engin skaðleg áhrif á jarðveg eða nærumhverfi ef það losnar út í umhverfið frá ökutæki en bensín og dísilolía getur valda miklum skaða.
  • Metan er eðlislétt lofttegund, ~ 0,717 kg/m3,  mun eðlisléttari en andrúmsloftið , ~ 1,216 kg/m3 og stígur hratt upp í opnu rými - bensín og dísilolía lekur niður og gufar upp og skapar þannig mun meiri hættu.
  • Metan er lyktarlaus lofttegund og skaðlaust lyktarefni sett út í eldsneytið svo unnt sé að greina ef um leka er að ræða.
  • Við afgreiðslu á metan eldsneyti skapast minni hætta vegna elds en ef um bensín eða dísilolíu er að ræða.
  • Metan hefur hátt sjálfkveikimark (hátt hitastig sjálftendrunar) (~450°C) og mun hærra en bensíni (~300°C) og dísilolíu (~230°C).
  • Metan er stöðugt efnasamband og í opnu rými skapast ekki eldhætta af metani ef efnastyrkur þess er undir 4,9%. Eldhætta skapast hins vegar vegna bensíns við hlutfallið 1,4% og 0,6% ef um dísilolíu er að ræða.
  • Metan er 125-130 oktan eldsneyti, en oktantalan gefur vísbendingu um áreiðanleika eldsneytisins.Metan eldsneytisgeymar eru úr stáli og mun rammgerðari en bensíngeymar sem algengt eru úr plasti.

    Hámarks hitastig metans við bruna er um 1884 °C, lægra en bensíns (~1977°C) og dísilolíu ( ~2054°C).

    Metan eldsneyti er selt í dag hjá N1á Bíldshöfða með traustum öryggisbúnaði sem gerir áfyllitímann svipaðan og fyrir bensín. Hjá N1á Bíldshöfða (á leið niður Ártúnsbrekku) er fyrsta flokks afgreiðsluþjónusta fyrir metan eldsneyti - fjórir afgreiðslustútar og sjálfsalar opnir er allan sólarhringinn.
    Við Breiðhellu (Tinhellu) í Hafnarfirði er mannlaus afgreiðslustöð með einum sjálfsala- færanleg gámaeining með afgreiðslukerfi.

   * Heimild: sjá hér: 
     Sjá myndsnkeið á Youtube um prófanir á metangeymun -sjá hér