Efnafræði metans
Metan er náttúruleg og lífræn lofttegund sem hefur sameindaformúluna, CH4. Metan er stöðugasta kolvetnasamband nárrúrunnar. Sameindin inniheldur eina kolefnisfrumeind (C) og fjórar vetnisfrumeindir (H). Við bruna á metani í bílhreyfli myndast koldíoxíð (CO2) og vatn (H2O) og mikil orka losnar úr læðingi. Efnajöfnu fyrir bruna metans má rita : CH4 + 2O2 → 2H2O + CO2 + orka (-890 kJ/mol). Sökum eiginleika metans er metan eldsneyti skilgreint sem 125-130 oktan eldsneyti - mun hærri oktantala en 95-oktana bensín. Oktantalan eldsneytis vísar til áreiðanleika við bruna þess í bílhreyflinum, hreinleika brunans.
Sökum uppruna hráefnisins, sem íslenskt metan eldsneyti er framleitt úr (hauggas), reiknast losun á koldíoxíði úr bílhreyfli sem brennir íslensku metani ekki sem aukning á losun gróðurhúsalofttegunda - enginn faglegur ágreiningur er um þá niðurstöðu enda er íslenskt metan framleitt úr lífrænu efni á yfirborði jarðar í dag (nútíma-metan). Sjá flipa um umhverfisáhrif - hér.

Metan eldsneyti er skaðlaust við snertingu og innöndun og er litar-og lyktarlaus lofttegund. Í ökutækjaeldsneytið er sett skaðlaust lyktarefni svo greina megi ef metan sleppur út í umhverfið. Metan eldsneyti er notað í stórauknum mæli um allan heim sem ökutækjaeldsneyti fyrir allar gerðir bíla og vinnuvéla. Metan er einnig hægt að geyma í fljótandi formi með því að kæla lofttegundina niður fyrir suðumark sitt sem er -162 °C og er notað í því formi sem eldsneyti á stærri ökutæki, báta og skip (e. Liquified Natural Gas, LNG).
Metan er eðlislétt lofttegund (~ 0,717 kg/m3) og mun eðlisléttari en andrúmsloftið (~1,216 kg/m3) sem gerir það að verkum að ef metan losnar út í andrúmsloftið stígur það hratt upp, en sá eiginleiki eykur öryggi metans sem eldsneytis á ökutæki. Hátt sjálfkveikimark (hátt hitastig sjálftendrunar) fyrir metan (~650°C) gerir það einnig að verkum að það eru minni líkur á eldsvoða vegna notkunar á metan eldsneyti samanborið við bensíni (~400°C) og dísilolíu (~250°C). Að auki er metan stöðugt efnasamband og kveikihætta í opnu rými skapast aðeins á mjög þröngu bili efnastyrks, eða á bilinu 5-14%. Við meiri eða minni efnastyrk á metani í lokuðu rými skapast ekki eldhætta og því telst bensíns og dísilolíu meðal annars hættulegra eldsneyti.
Metan eldsneyti er selt í dag á fjölorkustöð N1 á Bíldshöfða og í sjálfsala við Tinhellu í Hafnarfirði. Mælieiningin fyrir metan eldsneyti er Nm3 , normalrúmmetri. Orkulega séð samsvarar einn Nm3 af hreinu metani til orku sem er 12% meiri en sem nemur orkuinnihaldi í einum lítra af 95-oktana bensíni. Orkuinnihald í einum Nm3 af metani samsvarar um 10,17 kWh af hráorku. Flestir bílaframleiðendur heims framleiða í dag bíla með svonefndri tvíorkuvél sem gengur fyrir metani (fyrsti valkostur) en getur einnig gengið fyrir bensíni ef á þarf að halda - bílarnir hafa tvo eldsneytisgeyma.
Tvíorkubílarnir nýta orkuinnihald metansins það vel að færri einingar þarf af metani, Nm3, en sem nemur fjölda bensínlítra fyrir sama akstur. Sem dæmi má nefna, er uppgefin eldsneytisnotkun fyrir VW Passat árgerð 2010 í blönduðum akstri eru 6,9 Nm3/100km af metani en 7,2 L/100km af 95- oktana bensíni.
Við uppfærslu (breytingu) á bensínbíl í metan/bensínbíl er ráðlegt að gera ráð fyrir að eldsneytisnotkun af metani í normalrúmmetrum, Nm3, sé jöfn þeim lítrafjölda af bensíni sem bíllin notaði áður. Eftir uppfærsluna er unnt að aka á metan eldsneyti eingöngun, en algengt að tækjabúnaður sé stilltur þannig að örlítið bensín sé notað við ræsingu á bílnum. Sjá nánar, breyting á bílum.
Metan eldsneyti sem lofttegund er þjappað á metangeymi ökutækja á afgreiðslustað upp að þrýstingi sem nemur allt að 220 börum. Gera má ráð fyrir að eldsneytisbirgðir fyrir metan eldsneyti í gasformi taki 4,5x meira rúmmál en sem nemur rúmmáli bensíntanks ef miðað er við orkuinnihald, sömu akstursvegalengd á 95-oktana bensíni - sama drægi á eldsneytisbirgðum.
Jafngildi orkuinnihalds: 1 Nm3 100% metan = 1,12 L 95-oktan bensín = 0,98 L dísilolía
Frekari fróðleikur um metan og aðrar gerðir af eldsneyti:
Enska: Mikið af upplýsingum um metan er á að finna á Wikipedia :
Enska: sjá einnig:
Brunamálastofnun:
N1- eldsneytisblað-bensín:
N1- eldsneytisblað-dísilolía:








