Jarðgas frá Drekasvæðinu
Á Orkuþingi 2010 voru flutt erindi um Drekasvæðið við Ísland og kunngjört að líkindi standi til að þar sé jarðgas að finna. Miðað við reynslu Norðmanna á svipuðum jarðfræðilegum slóðum getur hér verið eftir miklu að slægjast enda selja Norðmenn jarðgas til Skotlands og inn í dreifikerfi Evrópu eftir lögn á hafsbotni sem spannar mun meiri vegalengd en sem nemur vegalengdinni frá Austfjörðum til Skotlands (~980km).
Rannsóknir við austurströnd Grænlands hafa skilað árangri og á það verið bent að finnist jarðgas við Drekasvæðið einnig skapast grundvöllur fyrir sameiginlega flutningsleið til Skotlands með miklu hagræði fyrir alla aðila. Sjá frétt á Mbl og kynningarsjöl frá CAIRN ; skjal-1 - skjal-2 - skjla-3 - skjal-4 - (öll kynningin).
Jarðgas inniheldur að stærstum hluta metan ( CH4) eða sem nemur 50-90% eftir landsvæðum. Ef jarðgas verður að finna í vinnanlegu magni á Drekasvæðinu opnast ný og glæsileg tækifæri til útflutnings og nýtingar fyrir okkur Íslendinga.
Í Svíþjóð er metan eldsneyti úr jarðgasi (fyrritíma-metan) blandað saman við nútíma-metan, sem unnið er úr lífmassa á yfirborði jarðar í dag. Svíar nefna blönduna ökutækjagas ( ,,fordonsgas'' ) og stefna að því að hraða metanvæðingu í samgöngum sínum með þessum hætti. Í dag er hlutfall nútíma-metan í ,,fordonsgasi'' víða um 43% og jarðgas því 57%. Hlutfall nútíma-metans í eldsneytisblöndu Svía breytist í samræmi við aukna framleiðslugetu þeirra á nútíma-metani. Ekkert er því til fyrirstöðu að metan-eldsneyti okkar Íslendinga innihaldi 100% nútíma-metan . Okkar íslenska metan í dag er nútíma-metan- bingó.
Margir hafa spurt, hvernig það megi vera í landi eins og Svíþjóð, þar sem umhverfisvitund er mikil, að stjórnvöld ákveði að hófstilla gjöld á eldsneytisblöndu af nútíma-metani og fyrritíma-metani (jarðgasi) ? Ánstæða er kristal tær og byggir á hagfelldum heildrænum umhverfisáhrifum, af notkun eldsneytisins, samkvæmt samanburði á niðurstöðum lífferilsgreiningar á ökutækjum og orkukerfi þeirra. Og þótt að um blöndu sé að ræða með þessum hætti. Við getum því auðveldlega sé hversu afgerandi hagfelldur okkar valkostur er að geta nýtt íslenskt metan, 100% nútíma-metan, á fólksbíla þjóðarinnar borið saman við alla aðra sambærilega valkosti.

Sjá kynningu frá CAIRN
Myndin að ofan er almenn skýringamynd en ekki fyrir Drekasvæðið sérstaklega.
Umhverfisvitund Svía er mikil og því eðlilegt að spurt sé hvort sænska ,,fordongasið'' uppfylli markmið þeirra um umhverfisvænni vélknúnar samgöngur. Svarið er afgerandi JÁ og enginn faglegur ágreiningur um það. Orkukerfi vélknúinna ökutækja í Svíþjóð sem nýta sænska metanið (fordonsgasið) skapa hlutfallslega mesta umhverfislega ávinningi sem völ er á til samgangna sambærilegra ökutækja. Ökutæki í Svíþjóð sem ganga fyrir ,,fordonsgasi´´ draga hlutfallslega mest úr losun gróðurhúsalofttegunda samanborið við öll önnur sambærileg vélknúin ökutæki. Og samkvæmt NAS-skýrslunni sem út kom í Bandaríkjunum í október 2009 er sú niðurstaða fyrirsjáanleg fram til ársins 2030 hið minnsta- þótt hlutfall nútíma-metans í ,,fordonsgasinu“ verði þá óbreytt (57%). Í ljósi þessa m.a. hafa stjórnvöld í Svíþjóð ákveðið að fella niður öll gjöld af ..fordonsgasi´´ frá 1-1-2011.

Okkur Íslendingum má því vera ljóst hversu dýrmæt sú eign okkar er að búa yfir þekkingu, reynslu og getu til að stórauka framleiðslu okkar á íslensku nútíma-metani sem við höfum framleitt frá árinu 2000. Og eiga þar að auki ,til vara, vitneskjuna um líkindi þess að jarðgas ( fyrritíma-metan) kunni að vera að finna í okkar landgrunni, á Drekasvæðinu. Í umhverfislegu og þjóðhagslegu tilliti er metanvæðingin á grænni grein á þessari öld.
Síða í vinnslu