English   |   Forsíða   |   Veftré   |   Hafa samband

Innflutningur á metani

Metan eldsneyti er notað um allan heim til húshitunar, eldunar, rafmagnsframleiðslu og sem ökutækjaeldsneyti. Framboð af metan er mikið í heiminum og heimsmarkaðsverð mun lægra en á bensíni og dísilolíu. Jarðgas inniheldur að stærstum hluta metan, CH4, eða allt að 90% eftir landsvæðum. Metan eldsneyti sem unnið er úr jarðgasi mætti nefna fyrritíma-metan þar sem það er myndað úr lífrænu efni sem var á yfirborði jarðar í fortíðinni. Til aðgreiningar á uppruna metansins má nefna metan eldsneyti sem unnið er úr lífrænu efni á yfirborði jarðar í dag, nútíma-metan. Íslenskt metan er nútíma-metan enda ekkert fyrritíma-metan að hafa á Íslandi í dag. Ef jarðgas reynist vera í vinnanlegur magni á Drekasvæðinu, eins og líkindi standa til, breytist staðan.

Sænsk stjórnvöld hafa haldið gjöldum af svonefndu ,,fordonsgasi“ þar í landi í lágum. Ökutækjaeldsneytið er blanda af fyrritíma-metani (jarðgasi), 57%, og nútíma-metani, 43%. Ástæða niðurfellingar gjalda af í Svíþjóð mótast af hagfelldum heildrænum umhverfisáhrifum, af notkun eldsneytisins, samkvæmt lífferilsgreiningu á ökutækjum og orkukerfi þeirra, þótt að um blöndu sé að ræða með þessum hætti. Niðurstaða Svía er kristal tær. Engin önnur sambærileg vélknúin ökutæki til einkanota koma betur út úr heildrænu umhverfismati en ökutæki sem nýta nútíma-metan eldsneyti til að knýja för. Við getum því auðveldlega sé hversu afgerandi umhverfislega hagfelldan valkost við eigum á Íslandi - að geta stóraukið nýtingu á íslensku metani í samgöngum þjóðarinnar - aukið nýtingu á 100% nútíma-metani.

Ef framvinda metanvæðingar á Íslandi yrði það hröð að við næðum ekki að anna eftirspurn tímabundið með okkar innanlandsframleiðslu á nútíma-metani gætum við tímabundið flutt inn jarðgas (fyrritíma-metan) . Ef til þess kæmi er viðbúið að kostnaður samfélagsins í erlendri mynt verði mun lægri en sem nemur kostnaði við að flytja inn bensín eða dísilolíu þar sem heimsmarkaðsverð á jarðgasi er mun lægra. Til að almenningur fái notið kostnaðarávinnings í krónum að fullu þarf þó að flytja inn tilskilið magn svo flutningskostnaður verði ekki of hátt hlutfall af söluverðmæti hverrar einingar.

Metan eldsneyti er unnt að flytja sem lofttegund (gas) undir þrýstingi í sérstökum gámum eða í vökvaformi , en þá er metanið kælt niður í -162°C. Í vökvaformi er unnt að flytja mun meiri hráorku í sama rúmmáli en ef um gasform er að ræða. Metanvökva er auðveldlega hægt að umbreytt í gasform á áfangastað eða notað í vökvaformi á ökutæki sem hafa eldsneytisgeyma til að taka við metan eldsneyti sem vökva eins og stærri ökutæki geta gert.



Nýverið voru fréttir af því að Norðmenn flytja metan eldsneyti í vökvaformi frá N-Noregi til Flórída. Enska skammstöfunin LNG á skipunum stendur fyrir orðin Liquefied Natural Gas eða jarðgas á vökvaformi.