Framleiðsla í landbúnaði
Metan eldsneyti er hægt að framleiða úr öllu lífrænu efni. Í landbúnaði fellur til mikið magn af lífrænu efni af ýmsum toga sem unnt er að nýta til framleiðslunnar. Þar fyrir utan er víða um heim ræktaðar orkuplöntur og lífmassi þeirra nýttur til metanframleiðslu. Einn stór kostur við framleiðslu á metan eldsneyti úr lífmassa er sá að unnt er að nýta allan lífmassa orkuplantna til framleiðslu á metani. Og ekki síður sú staðrteynd að hratið úr framleiðsluferlinu er næringarríkt og nýtist sem áburður til uppgræðslu lands eða ræktunar á næstu kynslóð orkuplantna.

Teikning að ofan frá Snorra Sigurðsyni, verkefnastjóra Sprota .
Metan hf hefur verið frumkvöðlum í landbúnaði innan handar við framleiðslu á metan eldsneyti úr mykju. Feðgarnir Jón Tryggvi og Guðmundur Stefánsson í Hraungerði í Flóa voru fyrstir bænda á íslandi til að framleiða metan eldsneyti með gerjun á mykju sem til fellur á búgarið þeirra - sjá skilaboð hér og nánar hér








