English   |   Forsíða   |   Veftré   |   Hafa samband

Söfnunarkerfi

Þegar úrgangurinn á urðunarstað SORPU bs. hefur sigið og þjappast í haugnum ( 18-24 mánuðir) eru lóðrétt göng (hola) boruð í gegnum hauginn með 350mm bor og borkjarninn tekinn upp. Safnröri (110mm) með götum er stungið niður í holuna, 15-20 meta , niður í botn haugsins (drenlag). Á yfirborðinu er settur loki á hvert safnrör (stútur) og það klætt þéttandi efni .

Í Álfsnesi er rörunum stungið niður með 25 metra millibili. Á rörunum eru göt með sérstökum hætti sem tryggir streymi losttegunda inn í rörin með því að skapa undirþrýsting í söfnunarkerfinu .  Undirþrýstingurinn er tryggður með rafknúinni dælu og rafmagnið fengið frá landsneti rafmagns. 
 
Hvert safnrör er tengt við plaströr sem liggur frá hverjum safnröri (stút) að svokallaðri safnkistu. Safnkisturnar eru tvær í dag og eru tengdar dælustöð sem sogar haugasið úr haugnum og skilar því inn í hreinsistöð SORPR bs. Sogkraftur er stilltur þannig að súrefni sé ekki dregið inn í hauginn úr andrúmsloftinu. Í hreinsistöðinni er hauggasið hreinsað með hætti sem einangrar metan (CH4) úr gasinu og afurðin verður metan eldsneyti í hæsta gæðaflokki með allt að 98% hreinleika, 125-130 oktan eldsneyti. ( sjá hreinsun metans)