English   |   Forsíða   |   Veftré   |   Hafa samband

Hreinsun

Á urðunarstað SORPU bs. í Álfsnesi myndast gas við niðurbrot úrgangs á urðunarstaðnum sem nefnt er hauggas. Efnainnihald í hauggasinu mælist að jafnaði um 57% metan (CH4), 41% koldíoxíð (CO2) og um 2% aðrar lofttegundir. Sá hluti hauggassins sem notaður er sem eldsneyti er metanið,CH4, en hinar lofttegundirnar eru heinsaðar frá með svonefndri þvegilsaðferð (vatnsþvotti). Í stuttu máli er hauggasið látið streyma upp turn á móti vatni. Vatnið nær ekki að fanga metan sameindina en dregur í sig koldíoxíð , CO2, og aðrar loftegundir. Einangrað metanið streymir því upp turninn og inn í þurrkunarrými áður en það er sent eftir 10 km lögn í jörðu að afgreiðslustöð N1 að Bíldshöfða 2.


Nokkrar leiðir hafa einkum verði notaðar til að skilja metanið frá öðrum lofttegundum:

  1. Ísogsaðferð eða á ensku PSA (Pressure Swing Absorption).
  2. Síuaðferð eða á ensku ,, Membrane "
  3. Þvegilsaðferð eða á ensku ,,Scrubber"  en það er sú aðferð sem SORPA bs. notar. Eftir vatnsþvottinn er metanið þurrkað þannig að daggarmark er við
    –30° C og þ
    á er hreinleiki metansins orðinn 95-98%
    . Hreinsun metans fer fram við rúmlega 30 bör.
       
  
Sjá einnig vef Landbúnaðarháskóla Íslands (Lbhí) -sjá NÁL
Sjá lýsingu á vatnsþvotti undir þrýstingi- hér
Sjá efnasansetningu á íslensku metani við síðustu mælingu, CH4 = 97,525 % - sjá hér 

     Sjá einnig: Biogas upgrading technologies, developments and innovations - sjá hér