Framleiðsla SORPU

Á urðunarstað vinna rotverur á lífmassanum, brjóta hann niður og koma frumefnum lífmassans aftur út í hringrás vistkerfisins. Súrefni (O) á ekki greiðan aðgang að urðuðum úrgangi og því rotnar urðaður lífrænn úrgangur með loftfirrtu niðurbroti (gerjun) sem sérstakar rotverur framkvæma við slík skilyrði ( bakteríur og sveppir). Við niðurbrot á lífrænu efni með þessum hætti myndast svokallað hauggas sem inniheldur að stærstum hluta lofttegundin metan (CH4).
![]()
Metan eldsneytið sem framleitt er á Álfsnesi er í hæsta gæðaflokki með allt að 98% hreinleika, 125-130 oktan eldsneyti. Þar sem eldsneytið er unnið úr lífrænu efni sem er í vistkerfi okkar, á yfirborði jarðar í dag, mætti kalla það nútíma-metan eldsneyti. Framleiðslan á Álfsnesi annar margfaldri þeirri notkun sem er í landinu í dag og því höfum við Íslendingar einstakt tækifæri til að stóraukna metanvæðingu í samgöngum á höfuðborgarsvæðinu og viðhafa umhverfisvæn orkukerfisskipti með hagfelldum hætti. Framleiðslan er þó aðeins lítið brot af því sem unnt er að framleiða af nútíma-metan eldsneyti á höfuðborgarsvæðinu og í landinu að öðru leiti. Nútíma-metan eldsneyti er framleitt víða um heim en mest er þó notkunin á metani sem unnið er úr á jarðgasi sem inniheldur að stærstum hluta metan. Slíkt metan eldsneyti mætti kalla fyrritíma-metan þar sem metanið verður til í jarðskorpunni úr lífrænu efni sem var á yfirborði jarðar í fortíðinni.
Síða í vinnslu








