Framleiðsla metans
Á Íslandi sem erlendis er metan þekkt sem öruggt, umhverfisvænt og hagfellt ökutækjaeldsneyti og um allan heim hefur það um áratuga skeið verið notað til húshitunar, eldunar og rafmagnsframleiðslu. Í heiminum hefur notkun á metani sem orkugjafa mestmegnis miðast við notkun á jarðgasi ( fyrritíma-metan). Mikil aukning hefur hins vergar átt sér stað viða um heim í framleiðslu á nútíma-metan eldsneyti.
Metan er hægt að framleiða úr öllu lífrænu efni á yfirborði jarðar, nútíma-metan. Sorpa bs. hefur framleitt nútíma-metan ökutækjaeldsneyti frá árinu 2000 úr hauggasi sem myndast við niðurbrot á lífrænu efni á urðunarstað höfuðborgarsvæðisins á Álfsnesi. Framleiðsla SORPU bs. er þó aðeins lítið brot af því sem unnt er að framleiða af nútíma-metani í landinu. Þar fyrir utan er metan helsta efnasambandið í jarðgasi en metan eldsneyti sem unnið er úr jarðgasi mætti nefna fyrritíma-metan þar sem það myndast í jarðlögum úr lífrænu efni sem var á yfirborði jarðar í fortíðinni.
Orkuinnihald og eiginleiki metan-sameindar (CH4) er sá hinn sami óháð því hvernig sameindin er mynduð. Bílvélin gerir engan greinamun á því hvort metan eldsneytið er nútíma-metan eða fyrritíma-metan. Umhverfislegur ávinningur af því að nota, fyrritíma-metan á ökutæki er mikill samanborið við notkun á bensíni, dísilolíu eða rafhlöðu, sem hluta af orkukerfi ökutækis. Hlutfallslegur ávinningur er þó mun meiri ef nútíma-metan er notað sem eldsneyti í stað fyrrnefndra valkosta. Heildrænn umhverfislegur ávinningur af því að nýta íslenskt metan eldsneyti til að knýja ökutæki landsmanna er hlutfallslega það mikill að rætt hefur um orkukerfi sem styðjast við íslenska metanið sem ,, gull allra orkukerfa til samgangna'' og íslenskt metan sem ,, gull allra eldsneyta".
Þingsályktunartillaga um metanframleiðslu til umræðu á Alþingi 2011 - sjá hér
Umsögn Metan hf - sjá hér








