English   |   Forsíða   |   Veftré   |   Hafa samband

Fréttir

30.06.11

Reykjavíkurborg opnaði tímamótatilboð frá bílaumboðunum - tilboð í 49 metan/bensínbíla.

Eins og greint hefur verið frá í fréttum á heimasíðunni óskaði Reykjavíkurborg nýverið eftir tilboðum í 49 minni fólksbíla sem nýtt gætu metaneldsneyti í akstri – metan/bensínbíla. Ingvar Helgason ehf. /Bifreiðar og landbúnaðarvélar ehf. átti lægsta tilboðið með Hyundai i10 bifreiðum, í samstarfi við MeGas ehf. sem sér um að uppfæra bifreiðarnar hér á landi svo þær geti einnig gengið fyrir metaneldsneyti.  Bílarnir hafa tvo eldsneytisgeyma eftir uppfærslu, metangeymi og bensíngeymi, en sérstök tölva stýrir notkun á metaneldsneyti til að knýja för sé það til staðar á 
metangeymi

Með kaupunum er Reykjavíkurborg að stíga tímamótaskref í átt að markmiði borgarinnar  um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda af jarðefnauppruna í samgöngum borgarinnar og bæta loftgæði í nærumhverfi borgarbúa.  Ákvörðunin hjálpar einnig til við að uppfylla alþjóðlegar skuldbindinga í loftslagsmálum sem Ísland er aðili, en á árinu 2020 er markmiðið að notkun endurnýjanlegra orkugjafa (orkubera) nemi 10% af orkunotkun þjóðarinnar í samgöngum.

Annar ávinningur af því að nýta íslenskt metan í samgöngum felst í hlutfallslega lágum rekstrarkostnaði bílanna í samanburði við rekstrarkostnað sambærilegra ökutækja sem veitt geta sama ferðafrelsi og samgönguöryggi.  Þótt bílarnir geti gengi fyrir metaneldsneyti að mestu leiti á Stór-Reykjavíkursvæðinu, geta þeir einnig gengið fyrir bensíni ef á þarf að halda og því um full ferðafrelsi að ræða ef því er að skipta.
 
Ákvörðun Reykjavíkurborgar skapar jafnframt þjóðhagslegan ávinning í formi gjaldeyrissparnaðar með því að nýta íslenskt metaneldsneyti til að knýja för í stað innflutts jarðefnaeldsneytis. Á árinu 2010 nam kostnaður í erlendri mynt um 36% af smásöluverði bensínlítra. Að auki styður ákvörðun Reykjavíkurborgar aukna framleiðslu í landinu og hvetur til grænna starfa í borginni.  Gjaldeyrissparnaður og aukin framleiðsla er forsenda hagsældar í landinu og því hér um að ræða sannkallað heillaspor á vegferð orkukerfisskipta í samgöngum í borginni. 

Senn mun Íslands umferð batna,
eflist rekstur líf og getan.
Hagur vex á grundum gatna,
gæfusporið íslenskt metan.

Sjá eldri frétt um útboð Reykjavíkurborgar

 

Til baka