English   |   Forsíða   |   Veftré   |   Hafa samband

Fréttir

16.06.11

Íranski bílaframleiðandinn IKCO stefnir að stóraukinni framleiðslu á metanbílum- yfir tvær milljónir ökutækja ganga fyrir metaneldsneyti í Íran í dag.

Mikill uppgangur hefur verið hjá Íranska bílaframleiðandanum IKCO  (e. Iran Khodro Company) og framleiðsla tökutækja sem nýtt geta metaneldsneyti í akstri aukist mikið á síðustu árum. Fyrirtækið hefur endurnýjað vöruframboð sitt og stefnir að stóraukinni framleiðslu fyrir innanlandsmarkað og til útflutnings.  Á þessu ári gerir fyrirtækið meðal annars ráð fyrir að framleiða 40,000 ökutæki í samstarfi við Renault og þar af um 6,000 ökutæki (15%) sem metan/bensínvél (e. bi-fuel). 

Íranski bílaframleiðandinn framleiðir ökutæki af ýmsum stærðum og gerðum. Meðal annars undir vörumerkjunum sínum, Samand, Dena og Runna.  Nýverið kynnti IKCO tvær gerði af Dena fólksbílum, Dena-LX og Dena-ELX, sem verða fáanlegir með 1648 cm³  metan/bensínvél í samstarfi við þýska fyrirtækið FEA. Áætlað er að framleiða 35,000 bíla 2012, 80,000 bíla 2013 og 100,000 bíla árlega frá 2015-2017. Þá hefur verið tilkynnt um nýja gerð af  Samand fólksbíl, Samanda NX7, sem mun verða fáanleg 2012 með metan/bensínvél (V6 1776 cm³). Fyrr á þessu ári tilkynnti forstjóri IKCO, Javad Najmeddin, að fyrirtækið muni hefja fjöldaframleiðslu á fólksbílnum Runna í september á þessu ári. Runna mun verða fáanlegur með  metan/bensínvél, (V16, 1600-1700 cm³ metanvél ) sem notar um 6,5 Nm³ á 100 km akstri.

Íranska bílaframleiðandinn IKCO hóf sölu á Samand fólksbílum árið 2000 eftir fjögurra ára þróun á bílnum, en bíllin er helsta tákn Írana um þjóðarbíl. Bíllinn er hannaður í samstarfi við Peugeot en um 80% af íhlutum bílsins eru framleiddir í Íran.  Síðastliðin ár hefur Íran verið hástökkvarinn á lista þjóða um metanvæðingu í samgöngum og í dag eru yfir tvær milljónir ökutækja í landinu sem nýtt geta  geta metaneldsneyti í akstri. Á komandi árum er stefna stjórnvalda að draga verulega hratt úr innanlandsnotkun á hefðbundnu ökutækjaeldsneyti og flytja út bensín og dísilolíu, enda býr landið yfir miklum jarðgasauðlindum en hefur verið nettó innflytjandi á bensíni og olíu á þessari öld. Að sögn talsmanna IKCO var fyrirtækið listað í 16. sæti meðal bílaframleiðanda í heiminum 2009 og framleiddi á því ári  688,000 fólks-og sendibíla. Aukin framleiðsla í fyrra og á þessu ári vísar til þess að á árinu 2014 muni IKCO framleiða yfir eina milljón ökutækja.

Fréttin veitir enn eitt dæmið um stóraukið framboð í heiminum af samgöngutækjum sem nýtt geta íslenskt metaneldsneyti í akstri í framtíðinni og varpar skýru ljósi á þá staðreynd að metanvæðingunni er ætlað stórt hlutverk við umhverfismildun samgangna í heiminum á þessari öld. Umhverfislegur ávinningur þess að nota jarðgas í stað hefðbundins jarðefnaeldsneytis er óumdeildur og framkvæmanlegur með hlutfallsleg hagfelldum hætti. Og samhliða ljóst að öll þau samgöngutæki sem nýtt geta metaneldsneyti frá jarðgasi geta einnig nýtt nútíma-metaneldsneyti unnið með endurnýjanlegum hætti úr lífrænum úrgangi og öðrum lífmassa á yfirborði jarðar. Í þeirri staðreynd liggja risavaxin umhverfisleg og orkuöryggisleg tækifæri sem þjóðir heims eru farnar að horfa til í stórauknum mæli um allan heim. Og sérstaklega í löndum þar sem skilyrði til stóraukinnar framleiðslu á nútíma-metani eru góð eins og á Íslandi. 

 

Til baka