Fréttir
Sportbílaframleiðendur horfa til metaneldsneytis og stefna að því að slá hraðamet.
Bílahönnuðurinn Marlon Kirby og bílasmiðurinn David B. McMahan sem áður hafa komið að hönnun ökutækja sem slegið hafa hraðmet með hefðbundnu eldsneyti hafa nú sett stefnuna á að slá hraðamet í flokki löggildra götubíla sem ganga fyrir umhverfismildu eldsneyti. Félagarnir hafa einsett sér að slá hraðametið með notkun á metaneldsneyti í vökvaformi. Bíll félaganna, Maxximus LNG 2000 , er með V8 vél sem skilar 1600 hestöflum og gengur fyrir metaneldsneyti eins og fyrr greindi. Annar ofurbíll , Prodigy, er í smíðum og að sögn fyrirhugað að vél hans geti skilað 2000 hestöflum. Áætlaður verðmiði á þeim bíl þykir líklegur til að skarta tölum á við einna milljón Bandaríkjadala .
Þýtt og endursagt af NGV Global:
Sjá einnig hér:
Viðauki við frétt:
Fréttin varpar ljósi á þá staðreynd að um allan heim er horft til metaneldsneytis í stórauknum mæli til að knýja samgöngur í heiminum með einum eða öðrum hætti. Metansameindin er stöðugasta kolvetnissameind náttúrunnar og skilar áreiðanlegum og mun hreinni bruna en hefðbundið eldsneyti – metaneldsneyti er skilgrein um 128 oktan eldsneyti. Sú staðreynd að sportbílahönnuðir horfa til metaneldsneytis til að slá hraðamet í flokki umhverfismildra ofurbíla segir sína sögu um nýtanleika eldsneytisins þótt slík ökutæki teljist seint til umhverfismildra fararskjóta fyrir tvo einstaklinga.
Áður hefur verið fjallað um það hér á heimasíðunni að VW Scirocco metanbíllinn hafi slegið í gegn og sigrað í STCC-mótaröðinni í opnum flokki löggildra götubíla í sportbílaflokki óháð eldsneytisnotkun – að bensínbílar frá Volvo, BMW, Romeo og SEAT hafi þurft að játa sig sigraða fyrir ökutæki sem gengið getur fyrir íslensku metaneldsneyti. Og þrátt fyrir breytingar á reglum til að draga úr hröðun metanbílsins.
Sjá eldri frétt








