English   |   Forsíða   |   Veftré   |   Hafa samband

Fréttir

14.06.11

Evrópusamtök um metanvæðingu í samgöngum fagna góðum árangri á skömmum tíma.

Ráðstefna og vörusýning Evrópusamtaka um metanvæðingu í samgöngum ( NGVA Europe) var haldi í Berlín í síðustu viku. Mikill vitundarvakning hefur átt sér stað um allan heim um tækifæri og ávinningi þess að stórauka metanvæðingu í samgöngum í heiminum og Evrópa engin undantekning í þeim efnum. Veldisaukning hefur orðið í fjölda meðlima í Evrópusamtökunum á þremur árum, frá 20 meðlimun árið 2008 í 130 á þessu ári- 650% aukning á þremur árum. Meðal þeirra sem nýlega hafa gengið í samtökin eru rússneski jarðgasrisinn Gazprom og sænski bílaframleiðandinn Volvo AB en fulltrúar þeirra tóku sæti í stjórnunarteymi samtakanna. 

Síðar í þessum mánuði munu samtökin taka þátt í ráðstefnu sem haldin verður í Edinborg um dreifikerfi fyrir metaneldsneyti - jarðgas (e. CNG og LNG) og nútíma-metan ( e. Biomethane, CBG og LBG). Á ráðstefnunni mun framkvæmdastjóri samtakanna ræða raunsæ markmið um útbreiðslu og notkun metaneldsneytis. Jafnframt mun ráðstefna verða haldin í Brussel á vegum Evrópusambandsins (AEBIOM European Bioenergy Conference) þar sem Matthias Maedge, framkvæmdastjóri, mun meðal annars fjalla um áform og aðgerðaáætlun um aukna nýtingu á nútíma-metani (Biomethane, CBG, LBG) í samgöngum í Evrópu. Innskot. Íslenskt metaneldsneyti er nútíma-metan (e. Biomethane).

Þýtt og endursagt- sjá frétt 
 
Innskot: . Íslenskt metaneldsneyti er nútíma-metan (e. Biomethane) í þeim skilningi að það er unnið úr lífrænu efni sem er á yfirborði jarðar í dag og er það því í einstökum flokki ökutækjaeldsneyta enda losna engar gróðurhúsalofttegundir af jarðefnauppruna við bruna á nútíma-metani. Algengasta er í heiminum að metan ökutækjaeldsneyti sé unnið úr jarðgasi , sem inniheldur algengt 85-90% metan. Á heimasíðu Metan hf hefur metaneldsneyti unnið úr jarðgasi verið nefnt fyrritíma-metan í þeim skilningi að það myndast í jarðskorpunni úr lífrænu efni sem var á yfirborði jarðar í fortíðinni.

 

Til baka