English   |   Forsíða   |   Veftré   |   Hafa samband

Fréttir

10.06.11

Framfarir í Kaliforníu á sviði vetnisvæðingar í samgöngum

Eldsneytisrisinn Shell opnaði nýverið afgreiðslustöð, í Torrance í Kaliforníu, fyrir ökutæki sem nýtt geta vetni sem orkubera til að knýja för. Um er að ræða fyrstu afgreiðslustöð sinnar tegundar fyrir vetni í heiminum. Vetnið er flutt til stöðvarinnar eftir lögn í jörðu og mun stöðin þjóna eftirspurn í Los Angeles. Um er að ræða samstarfsverkefni Air Products (þjónustuaðila fyrir gas og íhluti), Shell, Toyota, South Coast Air Quality Management District (SCAQMD) og United States Department of Energy (DOE). Að sögn David J. Taylor, varaforstjóra Air Products, er um að ræða þróunarverkefni sem ætlað er að skila upplýsingum og reynslu sem nýtast mun til uppbyggingar fleiri stöðva í framtíðinni.

Væntingar standa til að verkefnið muni leiða í ljós rekstrarlegan ávinning þess að flytja vetni eftir lögn í jörðu í stað flutnings með gasbílum og jafnframt undirstrika hagræði þess að nota vetnisbíla í stað hefðbundinna ökutækja sem ganga fyrir bensíni. Shell mun reka stöðina og gert ráð fyrir að 10-12 ökutæki nýti stöðina daglega í fyrstu. Að sögn talsmanns
Toyota, Chris Hostetter, er lykilatriði fyrir bílaframleiðendur vetnisbíla að unnt reynist að byggja upp víðtækt dreifikerfi fyrir vetniseldsneyti á komandi árum. Talsmaður Shell, Julian Evison, segir að hér sé um að ræða þriðja þróunarverkefni fyrirtækisins í Kaliforníu á sviði vetnisafgreiðslu og að verkefnin skili dýrmætri reynslu í að prófa mismunandi búnað til að tryggja öruggt birgðahald og afgreiðslu á eldsneytinu auk þess að afla upplýsinga frá neytendum.

Þýtt og endursagt - sjá frétt

Viðauki við frétt:

Fréttin varpar ljósi á þá metnaðarfullu staðreynd að við Íslendingar höfum tekið þátt í þróun vetnisvæðingar í heiminum með virkri þátttöku í alþjóðlegu vísindasamstarfi í allmörg ár og höfum m.a. í landinu stærsts vetnisbílaflota í Evrópu svo fátt eitt sé nefnt (um 25 fólksbílar í notkun). Á Shell afgreiðslustöðinni við Vesturlandsveg má sjá glæsilega afgreiðslustöð fyrir vetni (Hydrogen Fuel) sem vakti mikla athygli á sínum tíma á heimsvísu. Samkvæmt talsmönnum vetnisvæðingar er þess að vænta að á árinu 2015 verði í boði í heiminum fjöldaframleidd vetnisökutæki af ýmsum gerðum og stærðum. Fyrir utan mögulegt hlutfallslegt hagræði þess að nýta vetni á bifreiðar og önnur samgöngutæki í framtíðinni hefur áhugi á vetni til orkuöflunar fyrir iðnað og stóriðju aukist mikið í kjölfar kjarnorkuófaranna í Japan fyrr á þessu ári og ákvörðunar Þjóðverja um að loka kjarnorkuverum þar í landi svo fátt eitt sé nefnt.

 

 

 

Til baka