Fréttir
Metan/dísil vöruflutningabílar frá Volvo komnir á markað - ný tækifæri til metanvæðingar skapast á Íslandi.
Volvo Truck hefur hafið sölu á vöruflutningabílum, Volvo FM, með tvíorkuvél ( e. dual fuel) sem brennir blöndu af metani ( allt að 75%) og dísilolíu. Nýjung Volvo skapar tækifæri til þess að aka stórvirkum samgöngutækjum mun lengra á einni fyllingu af umhverfisvænu eldsneyti ( innsk. ökutækin geta nýtt íslenskt metan í akstri allt að 75%) miðað við sama rúmmál eldsneytisbirgða. Að sögn Cales Nilsson, forseta Evrópudeildar Volvo Trucks, er Volvo fyrsti evrópski bílaframleiðandinn sem setur á markað stærri samgöngutæki sem nýtt geta metaneldsneyti til langflutninga. Að sögn
talsmanna Volvo er fyrirtækið að bregðast við kalli og kröfum á markaði um umhverfisvænni samgöngur og mæta aukinni eftirspurn eftir stærri samgöngutækjum sem nýtt geta metaneldsneyti til að knýja för. Að mati Volvo mun framtíðin bera í skauti sér stóraukna framleiðslu og notkun á nútíma-metani ( e. bio-methane, eins og íslenskt metan) og því mun akstur á Volvo FM vöruflutningabílum verða enn umhverfisvænni á komandi árum. Í dag er metaneldsneyti í heiminum að stærstum hluta unnið úr jarðgasi sem er mun umhverfismildara eldsneyti en dísilolíu eða bensín og því ávinningurinn einnig mikill þótt jarðgas ( LNG eða CNG) sé nýtt til að knýja för í stað hefðbundins jarðefnaeldsneytis.
Áætlun Volvo Truck gerir ráð fyrir að Volvo FM bílarnir muni seljast í 6-8 löndum næstu tvö árin og eftirspurn nema um 400 flutningabílum á ári. Frekari söluaukning mun ráðast af útbreiðslu á afgreiðslu á metaneldsneyti í vökvaformi. Rannsóknir á Volvo FM metan/dísilbílunum hafa leitt í ljós sama áreiðanleika í notkun og ef um væri að ræða hefðbundin dísilbíl og þægindi í akstri sambærileg. Ef metanbirgðir klárast í akstri skipti tölva bílsins yfir á dísilbirgðirnar og nýtir þá 100% dísilolíu án þess að ökumaðurinn finni mun. Að því gefnu að heildarþyngd nemi um 40 tonnum duga eldsneytisbyrgðir bílsins til 500 km akstur miðað við 75% nýtingu á metani í bland við dísilolíu.
Þýtt og endursagt - sjá frétt
Sjá heimasíðu hjá Brimborg
Viðauki við frétt:
Metanbirgðir Volvo FM bílanna eru í vökvaformi og tak því mun minna pláss en ef um gaskúta væri að ræða miðað við sama orkuinnihald. Með metangeymunum í Volvo FM er því unnt að tryggja mun lengri akstursvegalengd stærri samgöngutækja á metaneldsneytisbirgðum í sama rúmmáli og metangaskútar hefðu ella tekið. Rúmmálið fyrir metaneldsneyti í vökvaformi er aðeins um 1,8 X það sem það er fyrir sama orkuinnihald af dísilolíu. Ef um væri að ræða metangeymi fyrir gas sem þjappað er með um 200 bara þrýstingi væri rúmmál metangeymis um 5 X stærra en fyrir dísilgeymi sem inniheldur sama orkuinnihald og skilar sama drægi. Hér er því um mikla framþróun að ræða fyrir stærri samgöngutæki. Metaneldsneyti má halda á vökvaformi með kælingu, niður fyrir suðumark sitt, sem er -162 °C og hægt að geyma það með öruggum hætti í fljótandi formi í sérstökum eldsneytisgeymum undir lágþrýstingi. metaneldsneyti í fljótandi formi er notað á stærri ökutæki, báta og skip víða um heim og mikil aukning í notkun fyrirsjáanleg í framtíðinni (e. Liquified Natural Gas, LNG). Með kælingu á íslensku metani með sama hætti geta öll samgöngutæki sem nýtt geta fljótandi metan ( e. LNG, liquid natural gas) einnig nýtt íslenskt og endurnýjanlegt eldsneyti í akstri.








