Fréttir
Metanvæðing í samgöngum í mikilli sókn í Bandaríkjunum – risinn á markaðnum er vaknaður
Bandarísku metanbílasamtökin ( NGVAmerica) birtu nýverið lista yfir vottaðar vélar og ökutæki sem nýtta metaneldsneyti sem orkugjafa og framleidd eru í Bandaríkjunum. Athygli vekur hversu hratt framboð hefur aukist á valkostum til að nýta metaneldsneyti fyrir ökutæki af öllum stærðum. Bandaríkjamenn hafa verið eftirbátar margra ríkja heims um metanvæðingu í samgöngum en nú blasir við að risinn á bílamarkaði heimsins sé að taka við sér með afgerandi hætti. Á nokkrum misserum hefur fjöldi stórra fyrirtækja hlotið vottun til uppfærslu bensínbíla
í metan/bensínbíl (e.bi-fuel) og dísilbíla í metan/dísilbíla ( e.dual-fuel) auk þess sem bílaframleiðendur hafa í stórauknum mæli kynnt áform um að bjóða upp á ný ökutæki, með metanbúnaði, til sölu á Bandaríkjamarkaði á komandi misserum og árum.
Innskot: Samkvæmt tölvurita metan/bensín leigubíls í Reykjavík sem ekið var 24.498 km frá nóvember 2010 til mars 2011 nam bensínnotkun bílsins um 3,6% af eldsneytisnotkuninni og metaneldsneyti um 96,4%, að sögn Guðmundar Einarssonar hjá Hreyfli. Öllum má því vera ljóst að þótt hlutfall bensínsnotkunar væri mun hærra en þetta er hér um að ræða gríðarlegan umhverfislegan heildarávinning enda losnar enginn CO2-af jarðefnauppruna (koltvísýringur af jarðefnauppruna) við bruna á íslensku metani. Vegna tenglanna hér að neðan e r rétt að áretta að öll ökutæki sem gang fyrir CNG-eldsneyti (e. Compressed Natural Gas) eða jarðgasi geta einnig gengið fyrir íslensku metani. Og það sem meira er ganga betur fyrir íslenska metaninu ef eitthvað er enda er það í hæsta gæðaflokki með allt að 98% hreinleika -sjá greinagerð frá verkfræðistofunni Mannvit.
stefnuför sem breytir leik.
Náist sátt um nýjan sið,
naskir ákaft fara á kreik.








