English   |   Forsíða   |   Veftré   |   Hafa samband

Fréttir

26.05.11

Metaneldsneyti unnið úr seyru mun knýja almenningssamgöngur í Dehli eins og í Stokkhólmi og víðar í heiminum

Samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Delhi mun senn skila Indverjum fyrstu metanframleiðslustöð, í landinu, þar sem metan ökutækjaeldsneyti er unnið úr seyru (skólpi). Verksmiðjan mun  meðhöndla seyru með tilteknum hætti í skólphreinsistöð í borginni, hreinsa það hauggas (e. biogas) sem myndast, einangra metansameindina (CH4) úr gasinu og framleiða metaneldsneyti í hæsta gæðaflokki. Fyrirhugað er að nýta metaneldsneytið til að knýja för almenningsvagna (strætóa) í borginni ( ,, Delhi Transport Corporation“). Eldsneytisframleiðslan mun nýtast Delhi-borg frá fyrsta degi enda eru í borginni fleiri metanstrætisvagnar en í flestum borgum heims. Samkvæmt frétt í Indian Express mun verkefnið hefjast í september 2011.
 
Þýtt og endursagt – sjá frétt

Viðauki frá vefstjóra:
Þann 28. september 2010 bitrist frétt hér á síðunni um innleiðingu fjögurra tvinn-metan/rafmagn strætisvagnana í almenningsvagnaflota Delhi-borgar sem þar fyrir utan starfrækir um 600 strætisvagna sem eingöngu eru knúnir metaneldsneyti (CNG, úr jarðgasi). Þess má einnig geta hér að samkvæmt nýjustu tölum frá NGVA Europe eru yfir ein milljón ökutækja í Indlandi sem gang fyrir metaneldsneyti og aukningin verið mikil síðastliðin ár eins og um allan heim. Sjá hér

Þann 10. mars 2011 birtist hér einnig frétt um samstarf Stofnunar Sæmundar fróða og Metan hf. um að standa að rannsóknum á möguleika og hagkvæmni þess að nýta lífrænan hluta skólps til metanframleiðslu. Við Íslendingar erum því að stíga fyrstu fetin í þessum málaflokki og afar æskilegt ef unnt væri að hraða vegferðinni í ljósi stóraukinnar eftirspurnar eftir metaneldsneyti á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Sjá hér

Í skólpinu grillir í gullið,
sem gleður um allan heim.
Magnað er mannanna sullið,
sem myndar seyru keim.

 

Til baka