Fréttir
Audi kynnir ákvörðun um framleiðslu A3 bíla með tvíorkuvél – metan/bensín
Háleitt markmið Audi, um að öll ökutæki frá fyrirtækinu muni í framtíðinni ekki losa koltvísýringa (CO2) af jarðefnauppruna í akstri ( e.,,Audi balabced mobility“ - neutral CO2 balance), hefur leitt til þess að Audi hefur tilkynnt um áform um að bjóða Audi A3 bíla með tvíorkuvél, metan/bensínvél.
Í frétt á NGVGlobal segir að innkoma Audi á metanbílamarkaðinn sé mikilvægur áfangi að vegferð fyrirtækisins að settu marki og að ákvörðunin hjálpi einnig til við að auka hagræðingu í framleiðslu og dreifingu á endurnýjanlegu eldsneyti. Jafnframt segir í fréttinni að ferlar hreinnar orkuframleiðslu með vindorku bjóði upp á framleiðslu á metani (CH4) og vetni (H) sem séu lykil orkugjafar (orkuberar) í framtíðar samgöngum. Og að metanvæðing á A3 bílum sé einn áfangi í þeirri umhverfisvænu stefnu sem Audi hefur einsett sér að fylgja í framtíðinni.
Þýtt og endursagt- sjá frétt:
Viðauki við frétt frá vefstjóra: Í fréttinni er getið um þau vistfræðilegu sannindi sem enginn faglegur ágreiningur er um varðandi hlýnunaráhrif í lofthjúpi jarðar samfara bruna á nútíma-metani, metaneldsneyti sem unnið er úr lífrænu efni sem er á yfirborði jarðar í dag (e. thank-to-wheel) . Og jafnframt rætt um lífferilsgreiningu á heildrænum umhverfisáhrifum, hlýnunaráhrif í lofthjúpi jarðar, vegna vélknúinna samgangna ( e. well-to-wheel) sem nýtt geta nútíma-metaneldsneyti í akstri. Útkoma metanbílsins er það góð að Audi mun leggjast á sveif með flestum bílaframleiðendum í heiminum árið 2013. Metanvæðingin er sannarlega á grænni grein á þessari öld.








