Fréttir og fróðleikur
Mikið magn af fréttum og fróðleik er að finna um metanvæðinguna í heiminum, enda hafa stórstígar framfarir og mikil þróun átt sér stað á þessari öld í framleiðslu og dreifingu á metan eldsneyti. Framboð á samgöngutækjum og vélum sem nýtt geta metan eldsneyti hefur aukist mikið frá aldamótum og svo komið að flestir bílaframleiðendur heims framleiða í dag ökutæki sem ganga fyrir metani. Jafnframt eykst notkun í heiminum á metani til að knýja báta og skipa og ljóst að metanvæðingunni er ætlað stórt hlutverk við umhverfisvæn orkukerfisskipti í samgöngum í heiminum á þessari öld.








